Lokaverkefni áfangans felst í því að gera kvikefni að eigin vali sem reynir á alla þætti námsins, klippingar, hljóð, mynd og handritsgerð. Verkefnið er þríþætt og skila þarf:
1) Lýsingu á viðfangsefninu
2) Handriti efnisins
3) Lokaafurð
Viðfangsefni mitt verður stuttmynd sem gengur undir vinnuheitinu Elvis lifir. Handritið verður unnið út frá stílæfingu sem ég reit í diplómunámi í ritlist við HÍ árið 2003 og bar heitið Help me make it through the night.