Forsaga
Í ritlistarnámi við Háskóla Íslands árið 2003 fékk ég þá stílæfingu að setja mig í spor annarrar manneskju. Ég ákvað að sjálfsögðu að vera Elvis Presley í 1 dag. Stuttmyndin verður unnin með þessa stílæfingu að leiðarljósi og eftirfarandi samantekt eru fyrstu drög að handriti, þau munu trúlega breytast eitthvað en þetta legg ég upp með…

Nálgun
Gægst er inn í hugarflygsni gamals manns og svipmyndir birtar samhliða. Hér er á ferðinni Elvis Presley, níræður að horfa til baka. Ekkert samtal, bara einræða hans og hugsun. Ég er að leita að réttu röddinni og sveiflast á milli þess að fá eldri mann til að lesa inn á fyrir mig eða kanna með látúnsbarkann sjálfan.

Vangaveltur
Gengur upp að hafa rödd fertugs manns inn á svona myndefni?

Tökur
Ég hafði hugsað mér að taka nokkrar myndir af afa á röltinu um Kópavog þar sem hann býr. Fara með honum á kaffihús, staldra við tjörnina og þar sem hann stendur við búðarglugga og eitthvað fleira. Bara svona nokkrar hversdagsmyndir sem halda uppi myndinni. Þess á milli skipta jafnvel yfir í skot sem ég get tekið án þess að hann sé með eða tímaflakk, þegar hugur hans reikar úr núinu og fer á flakk. Er samt ekki alveg búin að hugsa þetta til enda.

Hljóð/tónlist/undirspil
Á rölti sínu og afturliti til fortíðar poppa vinsæl lög upp í huga hins aldraða Elviss, það er eitt og annað í lífi hans sem minnir hann sjálfan á hina fornu frægð. Ég mun leitast við að tengja hugrenningar hans í það og það skiptið við fræg lög frá honum sjálfum svo trúlega verður um nokkuð öra skiptingu á undirspili. Ég er þó pínu hrædd um að það verði of mikið kaos og prófa mig því eitthvað áfram í þeim efnum. Jafnframt langar mig til að taka einhver skot frá öðrum t.d. úr kvikmyndum með Elvis og setja með – væri það í lagi?

Handrit
Hér kemur textinn eins og hann leggur sig. Ég klippti hann niður og setti inn í drög að senum eins og ég sé verkið fyrir mér í augnablikinu. Það á örugglega eftir að breytast eitthvað.

SENA 1 – UPPHAFSSKOT

U:1      Gamall maður er í anddyrinu heima hjá sér að taka sig til. Hann er á leið í göngu, mögulega með hund í bandi. Hann er í jakka og með silkislæðu um hálsinn. Hann lagar slæðuna aðeins til og setur svo á sig trefil og hatt. Horfir svo hugsi á sjálfan sig í spegli áður en hann fer út úr húsi.

U:2      Nærmynd af spegilmyndinni þar sem hann staldrar fyrst við, snýr sér svo við og labbar út.

U:3      Maðurinn kemur út úr húsinu og röltir rólega út úr mynd.

Texti
Ekkert tal, bara kunnuglegt undirspil með Elvis Presley.

………………………………………………  o ………………………………………………

 

SENA 2 – RÖLT (R:1-4) + TÍMAFLAKK (TF:1)

R:1      Horft á eftir gamla manninum þar sem hann gengur út í umferðina.

R:2      Maðurinn á rölti í miðbænum. Gengur framhjá bar og gægist þar inn um glugga.

R:3      Tekið inni og út þar sem sést hvar hann horfir hugsandi inn um gluggann.

KLIPPIEFFEKT sem gefur tímaflakk til kynna

TF:1    Maðurinn situr við fartölvu og er að “gúggla” myndir af Lisu Maríu og Pricillu Presley. Við hlið tölvunnar liggja nokkrar bækur um Elvis Presley sem rétt glittir í. Tekið heima hjá honum. Nærmynd sem sýnir hann strjúka yfir kinnar Pricillu á skjánum áður en hann loka fartölvunni.

R:4      Skot aftan á manninn þar sem hann stendur fyrir framan gluggann og er að strjúka yfir eigin kinnar, horfir svo á hringinn á hönd sér, nuddar hann aðeins og snýr sér loks við og heldur áfram göngunni.

TEXTI 1
Ég heyri tónlistina óma hvert sem ég fer. Á barnum. Í bíó. In The Ghetto. Hjartað tekur jafnmikinn kipp við að heyra gamla karla raula með og þegar ungar stúlkur biðja um óskalag. Ég veit að ég átti helling inni en þetta var of mikið álag. Sárast var að kveðja ekki. Konan stendur sig prýðilega og dóttirin ekki síður. Mikið eru þær annars líkar mömmu – báðar. Get ekki sagt annað en ég sakni þeirra. Bartanna. Hringanna. Memories. Varð bara að gefa þessu líf. Varð að láta mig hverfa. My Way.

………………………………………………  o ………………………………………………

SENA 3 – TÓNLISTARVERSLUN + TÍMAFLAKK (TF:2)

T:1      Stendur fyrir framan cd rekkana og skimar yfir úrvalið – tekið á hlið.
T:2      Nærmynd, tekur upp cd með Elvis Presley, veltir honum hugsandi fyrir sér.
T:3      Andlitsmynd, horfir ennþá hljóður á diskinn

KLIPPIEFFEKT sem gefur tímaflakk til kynna

TF:2a Sest fyrir framan sjónvarpið heima hjá sér og tekur upp fjarstýringuna og kveikir á sjónvarpinu.
TF:2b Skot af sjónvarpinu þar sem sést leikinn mynd með Elvis Presley.
TF:2c   Andlitsmynd af manninum þar sem hann situr og horfir á sjónvarpið, fært yfir á borðið við hlið hans sem er með staflana af dvd myndum með Elvis.

T:4      Leggur cd frá sér í búðinni, kinkar kolli til afgreiðslumannsins og labbar rólega út. Í dyrunum mætir hann hinum íslenska Elvis sem labbar inn í fullum skrúða (ef hægt er).

TEXTI 2
Ég get ekki sætt mig við umræðuna.  All Shook Up. Allir þykjast þekkja mig, afdrif mín. Hann lifir segja sumir. Fólk hefur stórgrætt á endurminningum sínum. Fame And Fortune. Talið sig bestu vini mína. Aldrei séð það fyrr. Langar að svara í sömu mynt. Return To Sender. Fæ mig ekki til þess. Búinn að brenna of margar brýr að baki. Verð að halda áfram á sömu braut. Just Pretend. Ótrauður. Fyndið hvernig kvikmyndir hafa grætt á hvarfi mínu, heimildamyndir, grínmyndir og jafnvel teiknimyndir. Any Way You Want Me. Því er ekki að neita, ég var ansi stór. Sá stærsti segja margir. Kóngurinn. Sjálfum finnst mér ég bara hafa verið peð í valdatafli útgefenda. Og er enn.

………………………………………………  o ………………………………………………

SENA 4 – KAFFIHÚS Í HAMRABORG

K:1      Sest niður á kaffihúsi og lítur í kringum sig, sér ungling með spjaldtölvu á næsta borði og fer að fylgjast með því sem er á skjánum hjá honum.
K:2      Nærmynd á spjaldtölvuna þar sem unglingurinn sést skrolla niður aðdáendasíður með Elvis Presley.
K: 3     Þjónustustúlka kemur með kaffibolla og brauðbollu, maðurinn byrjar að sötra en snertir ekki brauðið.
K: 4     Unglingurinn og spjaldtölvan í nærmynd og gamli maðurinn í baksýn þar sem hann sötrar kaffið sitt í rólegheitum.
K: 5     Gamli maðurinn setur hattinn á sig og gengur út, með brauðið í hendinni – hurðin lokast á eftir honum.

TEXTI 3
Sérkennilegt að fylgjast með lífshlaupi sínu í gegnum heimasíður aðdáenda. Myndir sem ég hef ekki áður séð. Ferðir sem ég kannast ekki við. Uppskriftir sem ég hef aldrei smakkað. Lög sem ég minnist ekki að hafi verið hljóðrituð. Konur sem aldrei voru lagðar. Long Tall Sally. Gæli stundum við að gefa mig fram. Surrender. Skyldu þeir trúa mér? Hvernig myndi veröldin bregðast við? Hverju myndi ég mæta? Suspicious Minds? Man ekki til þess að til væri lífssýni. Eflaust lítið þýtt að taka það á þessum árum. Varð að halda þetta út. Verð að leika þetta til enda. Halda hlutverkinu.

………………………………………………  o ………………………………………………

SENA 5 – FUGLAFÓÐRUN

F:1       Situr á bekk og gefur fuglum brauð – tekið beint framan á hann.
F:2       Lítur upp þegar hann heyrir síma hringja (til hægri eða vinstri)
F:3       Faðir leiðir organdi barn upp brekku, barnið heldur á stórum bangsa, ekki viss hvernig ég vil hafa þetta skot.
F:4       Maðurinn horfir á eftir föður og barni og lítur svo niður á hendur sér og hendir því sem eftir er af brauðinu til fuglanna. Situr áfram hljóður og hugsandi.
F:5       Tekið aftan frá þar sem sést hvar maðurinn situr og horfir út á tjörn.

TEXTI 4
Sími hringir. Kunnuglegt lag. Ég er kominn á farsímamarkaðinn. It´s  So Strange. Ungur maður á uppleið svarar og dregur barnið sitt organdi yfir hæðina. Don´t Be Cruel! Barnið gefst upp. Maðurinn fer of hratt. Ekki hægt að gráta og flýta sér á sama tíma. Ég þekki það. Fægðir og glansaðir skórnir slást í bangsa barnsins. Blue Suede Shoes. Þetta var ekki svona áður fyrr. Allir höfðu tíma. Ég hafði tíma.

………………………………………………  o ………………………………………………

SENA 6 – HEIMLEIÐIN

H:1      Stendur upp og röltir af stað.
H:2      Stendur við rautt gangbrautarljós og bíður meðan bílar aka framhjá.
H:3      Nærmynd þar sem hann blæs í hendur sér og nuddar þær saman.
H:4      Labbar inn í húsið sitt.
H:5      Leggur húslyklinn frá sér á eldhúsborðið og slæðuna þar á eftir. Þar sem lyklarnir lenda eru nokkrar plötur með Elvis Preysley sem liggja óreglulega á borðinu, ofan á plötunum er blað sem hann tekur upp.
H:6      Nærmynd á blaðið, leiðbeiningar frá sjúkrahúsinu um hvernig eigi að fasta fyrir aðgerðir.

TEXTI 5
Mér er kalt. Það hefur kólnað en fallegt um að litast. Mjöllin sleikir götusteinana. Það stirnir á hrímaða stauranna. Winter Wonderland. Best að drífa sig heim. Á hótel hjartaáfallanna. Karókí í kvöld. Tek aldrei þátt. Þegar maður dregur sig í hlé, þá dregur maður sig í hlé. Það yljar mér þó að heyra í gamlingjunum. Sjá taktana. Fjúkandi slæður. Guitar Man. Mjaðmahnykkina. Sem minnir mig á það – verð að fasta fyrir aðgerðina á morgun. Ég er kvíðinn. Það getur brugðið til beggja vona. Ég hafði ekki hugsað það til enda að verða jarðsettur í annað sinn. Óþekktur. Stranger In The Crowd.

………………………………………………  o ………………………………………………

SENA - SVEFNINN

S:1       Sést hvar hann kemur úr eldhúsinu og gengur inn í svefnherbergið sitt. Þar er logandi lampi við rúmið, og mynd af Pricillu Presley.
S:2       Leggst upp í rúm, liggur á bakinu og dregur sængina upp að höku. Horfir hugsandi upp í loftið – tekið frá hlið.
S:3       Teygir sig í lampann og slekkur ljósið.
S:4       Skot í myrkrinu þar sem hann liggur á bakinu en snýr sér svo þannig að hann snýr baki í myndavélina.

TEXTI 6

Ég finn hvernig ellin læðist í beinin. Hjartað kvartar. Lungun orðin löt. Allt á einni leið. Way Down. Mig vantar nokkrar stundir enn. Nokkrar stundir áður en ég kemst undir hnífinn. Góður guð. Help Me Make It Through The Night…