Háskóli Íslands
Ritlist 2003, Frásagnartækni 1
Kennari: Rúnar Helgi Vignissons

Stílæfingar

Help me make it through the night

Ég heyri tónlistina óma hvert sem ég fer. Á barnum. Í bíó. In the ghetto. Hjartað tekur jafnmikinn kipp við að heyra gamla karla raula með og þegar ungar stúlkur biðja um óskalag. Ég veit að ég átti helling inni en þetta var of mikið álag. Sárast var að kveðja ekki. Konan stendur sig prýðilega og dóttirin ekki síður. Mikið eru þær annars líkar mömmu – báðar. Get ekki sagt annað en ég sakni þeirra. Bartanna. Hringanna. Memories. Varð bara að gefa þessu líf. Varð að láta mig hverfa. My way.

Ég get ekki sætt mig við umræðuna. All shook up. Allir þykjast þekkja mig, afdrif mín. Hann lifir segja sumir. Fólk hefur stórgrætt á endurminningum sínum. Fame and fortune. Talið sig bestu vini mína. Aldrei séð það fyrr. Langar að svara í sömu mynt. Return to sender. Fæ mig ekki til þess. Búinn að brenna of margar brýr að baki. Verð að halda áfram á sömu braut. Just pretend. Ótrauður. Fyndið hvernig kvikmyndir hafa grætt á hvarfi mínu, heimildamyndir, grínmyndir og jafnvel teiknimyndir. Any way you want me. Því er ekki að neita, ég var ansi stór. Sá stærsti segja margir. Kóngurinn. Sjálfum finnst mér ég bara hafa verið peð í valdatafli útgefenda. Og er enn.

Sérkennilegt að fylgjast með lífshlaupi sínu í gegnum heimasíður aðdáenda. Myndir sem ég hef ekki áður séð. Ferðir sem ég kannast ekki við. Uppskriftir sem ég hef aldrei smakkað. Lög sem ég minnist ekki að hafi verið hljóðrituð. Konur sem aldrei voru lagðar. Long tall Sally. Gæli stundum við að gefa mig fram. Surrender. Skyldu þeir trúa mér? Hvernig myndi veröldin bregðast við? Hverju myndi ég mæta? Suspicious minds? Man ekki til þess að til væru lífssýni. Eflaust lítið þýtt að taka þau á þessum árum. Verð að halda þetta út. Verð að leika þetta til enda. Halda hlutverkinu.

Sími hringir. Kunnuglegt lag. Ég er kominn á farsímamarkaðinn. It´s  so strange. Ungur maður á uppleið svarar og dregur barnið sitt organdi yfir hæðina. Don´t be cruel! Barnið gefst upp. Maðurinn fer of hratt. Ekki hægt að gráta og flýta sér á sama tíma. Ég þekki það. Fægðir og glansandi skórnir slást í bangsa barnsins. Blue suede shoes. Þetta var ekki svona áður fyrr. Allir höfðu tíma. Ég hafði tíma.

Mér er kalt. Það hefur kólnað en fallegt um að litast. Mjöllin sleikir götusteinana. Það stirnir á hrímaða stauranna. Winter wonderland. Best að drífa sig heim. Á hótel hjartaáfallanna. Karókí í kvöld. Tek aldrei þátt. Þegar maður dregur sig í hlé, þá dregur maður sig í hlé. Það yljar mér þó að heyra í gamlingjunum. Sjá taktana. Fjúkandi slæður. Guitar man. Mjaðmahnykkina. Sem minnir mig á það – verð að fasta fyrir aðgerðina á morgun. Ég er kvíðinn. Það getur brugðið til beggja vona. Ég hafði ekki hugsað það til enda að verða jarðsettur í annað sinn. Óþekktur. Stranger in the crowd. Ég finn hvernig ellin læðist í beinin. Hjartað kvartar. Lungun orðin löt. Allt á einni leið. Way down. Mig vantar nokkrar stundir enn. Nokkrar stundir áður en ég kemst undir hnífinn. Góður guð. Help me make it through the night…