Markmið og efnistök

Markmið

Markmiðið er að sýna fram á það í einu verki hvaða nám hefur átt sér stað hjá mér í haust í kvikmiðluninni. Til stendur að kynnast handritsgerð og ná tökum á hljóðvinnslu auk þess að tileinka sér fræðin er lúta að klippingu og römmun skota. Ég stefni á að gera stuttmynd um Elvis Presley sem verður allt að 12 mínutur að lengd.

Forsaga

Ég ólst upp við mikinn áhuga föður míns á Elvis og tónlist hans. Veggmyndir, bílnúmeraplötur, frímerki, Elvis-sími, söngmyndir og tónlistadiskar einkenna skrifstofu föður míns og ásamt fleiri gripum tengt átrúnaðargoðinu. Svo mikill aðdáandi er faðir minn að hann byggði sér sumarhús í Skorradal og skýrði það Graceland auk þess sem hann hefur heimsótt híbýli Kóngsins og skrifað mér meðal annars bréf þaðan - stílað frá Elvis að sjálfsögðu. Ég furða mig í raun á því hvers vegna ég var skírð Unnur María en ekki Lísa María…

Ég var ung þegar ég smitaðist af þessum áhuga föður míns og á unglingsaldri hafði ég mun meiri áhuga á vínylplötum með Elvis heldur en Wham og Duran Duran, hljómsveitunum sem trylltu jafnaldra mína og splittuðu þeim í tvær fylkingar fyrir utan einn og einn sem var búinn að uppgötva Michael Jackson. Á þessum árum kunni ég stóran hluta textanna hans (og Ladda) þótt ég hafi nú ekki skilið allt sem þeir þýddu. Ég gekk jafnvel lengra og æfði mjaðmarykkina og sveiflurnar undir súð heima með hárbursta fyrir hljóðnema þegar enginn sá til.

Fyrir rúmum áratug stundaði ég nám í ritlist við Háskóla Íslands. Um var að ræða 30 eininga diplómunám og ein stílæfingin fólst í því að setja sig í spor manneskju að eigin vali, og vera sú manneskja daglangt. Þetta var nokkurs konar eins dags dagbók. Það lá beinast við að skipta um kyn og vera Elvis Presley í sólarhring eða svo, setja sig inn í tilfinningaheim og aðstæður goðsins áratugum eftir opinbert andlát hans. Þetta tókst ágætlega, textinn hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og því langar mig til að vinna aftur með hann í þessu verkefni og gera stuttmynd.

Hvernig sé ég efnistökin fyrir mér

Ég sé fyrir mér Elvis gamla á rölti um bæinn, einmana fanga eiginn hugrenninga og aðstæðna. Föðurafi minn, Maríus Theodór Arthúrsson, er á tíðræðisaldri og ég hyggst reyna að fá hann til að leika aldraðan Elvis. Afi mun ekki þurfa að tala neitt og allur texti lesinn upp og hafður undir. Gefi afi ekki kost á sér í þessa vinnu hyggst ég leita til einhverra félaga minna og meðlima í Halaleikhópnum, leikfélagi fatlaðra og ófatlaðra.