HVAð ER MANDALA?
Mandala hefur verið til í mörg þúsund ár í hindúatrú, búddatrú og indverskri trú.
Mandala þýðir bæði hringur og miðja, hún er ekki eingöngu einfalt form heldur á hún sér mun dýpri merkingu. Mandala táknar sýnilega heiminn í kringum okkur, en einnig þann ósýnilega heim sem býr innra með okkur.
Hringurinn hefur engan enda eða byrjun og því óendanlegur. Táknrænt og andlegt gildi mandölunnar er tákn heildar og sannleika. Hringirnir og formin eru tákn opnunar og þar tengist mannlega vitundin frumgerð sinni.
Mandalan hefur verið þekkt meðal ólíkra menningarheima í árþúsundir sem andlegt og trúarlegt tákn. Það er einnig eitthvað dularfullt við hringinn sem heild.
“Mantras are not small things, mantras have power. They are the mind vibration in relationship to the Cosmos. The science of mantra is based on the knowledge that sound is a form of energy having structure, power, and a definite predictable effect on the chakras and the human psyche.”
~ Yogi Bhajan