Ef þig langar til að að kvelja mig ættir þú að binda mig niður og neyða mig til að horfa á fyrstu 5 myndböndin okkar. - Jon Bon Jovi

Fyrstu skrefin í myndbandagerð...

Myndskeiðið á youtube.com

 

Myndskeiðið vistað beint inn á heimasíðuna

Hugleiðing um verkefnið

Verkefnið fólst í því að setja saman stutt myndband, kynnast notkunarmögu-leikum iMovie og fullvinna efni til birtingar inni á Youtube.com.

Í byrjun var myndbandið teiknað upp sem skot, lengd þeirra og innihald ákveðið og svo hófst myndatakan. Að lokinni töku var efninu dælt inn á iMovie forritið þar sem við tók klippivinna auk þess að setja inn titil og kreditlista. Ákveðið var að vinna þá vinnu frá grunni í stað þess að velja tilbúin form.

Kynningin samanstendur af 4 myndskeiðum sem var svo skeytt saman. Allt í allt tekur það um 1:20 mín. Því næst var myndskeiðið vistað undir réttum stærðum og skráarheitum til birtingar á vef. Þeir nemendur sem ekki áttu gmail stofnuðu slíkt netfangið og loks hófst vinnan við að vista myndbandið á youtube.com, sjá hér.

Það er mitt mat að vel hafi tekist til. Mér gekk greiðlega að skilja verkefnafyrirælin og viðmótið í forritinu var auðskiljanlegt. Leiðbeinendur stóðu sig vel.

Varðandi notkunarmöguleikana fyrir mig að nýta mér video í tengslum við störf/áhugamál þá er ég búin að vera að bíða eftir tækifærinu til að kynnast þessum heimi. Ég hyggst nýta mér þetta mjög mikið til að búa til stutt fræðslumyndbönd og sketsa í tengslum við gæluverkefnið Frú Endurvinnsla, sem gengur út á að endurnýta hluti og gefa þeim nýtt líf. Með smíðakennaragrunninn hef ég verkkunnáttuna er lítur að  handverksþættinum en það hefur strandað á að kunna upptöku/klippiþáttinn. Eins mun ég klárlega nota þá þekkingu sem ég tek með mér úr skólanum til að koma myndskeiðasafni fjölskyldunnar í betra horf. Að fá innlit í heim myndbandagerðarinnar mun einnig nýtast mér sem viðburða-stjórnandi, svo og gefur þetta aukið sjálfstraust til að vinna með það kvikmyndagerð í starfi mínu sem grunnskólakennari.

 

_____________________________

Vefhönnun: Unnur María Sólmundsdóttir