List er eins og siðferði, hún felst í því að draga línurnar einhvers staðar. - Gilbert K. Chesterton
Okkur hættir til að teikna barnalega því þegar við teiknum förum við að treysta meira á minnið en það sem við sjáum fyrir framan okkur.
Gott að sjá ekki heildarmyndina strax heldur einungis bút af henni og nota blað til að setja leggja yfir. Hægt að nota blað/reglustiku/létta línu til að mynda "land" til að fara eftir og auðvelda sér að áætla lengdir og fjarlægðir. Eftir að útlínur eru allar komnar er hægt að fínpússa og laga línur, boga og fleira. Best að tálga blýanta í stað þess að ydda, og nota sandpappír. Harðari blýantar notaðir í ljósari fleti (2H, 3H, 4H, ...) og mýkri blýantar í dekkri fleti (5B, 6B, 7B, ...).

___________________________________________________________________