List er eins og siðferði, hún felst í því að draga línurnar einhvers staðar. - Gilbert K. Chesterton
Unnið með HB - B - 2B - 4B og 6B blýanta.

Í þessu verkefni er lýsingin að koma úr hægra efra horni.

Fyrirmæli um kúlu 18 cm í þvermál gaf ekki mikið svigrúm fyrir skugga en hér er tilraun til þess að koma honum á framfæri.

Lýsingin kemur ofan frá, hægra megin en sést ekki nógu vel á þessari mynd þar sem sjónarhorn ljósmyndarinnar er ekki það sama og teikningarinnar. Eins og sést á paprikunni sjálfri endurvarpast ljósið á hana á alla kanta.

Hér sést hvernig búið er að afmarka lýsinguna með litlum sívala flötum víða á paprikunni. Fyrirmæli um að nýta allt blaðið gaf ekki mikið svigrúm til að hafa skugga svo honum er sleppt.

Hér er verið að skyggja dekkstu svæðin.


Öll skygging komin og sömuleiðis aðrar fínni útlínur.

Í þessu verkefni er lýsingin að koma að ofan og ögn frá vinstri.



___________________________________________________________________