Landsliðsþjálfari á skautum


Helga Kristín Olsen er yfirþjálfari Skautadeildar Asparinnar, greinarstjóri fyrir skautaíþróttir Special Olympics og landsliðsþjálfari í skautum hjá Íþróttafélagi fatlaðra.  

Hún hóf skautaþjálfun árið 1996 og hefur starfað við það síðan ásamt því að vera starfandi grunnskólakennari frá árinu 2005. Árið 2004 hóf hún skautaþjálfun einstaklinga með fötlun og fór með keppendur á fyrsta stórmótið erlendis árið 2005, og kom þá heim með gull og brons. Árið 2009 fór hún með hóp keppenda á Special Olympics heimsleikana og í kjölfarið fylgdu fleiri stórmót og fleiri gull. Vorið 2014 skipulagði Helga fyrsta alþjóðlega skautamótið fyrir fatlaða hér heima, Inclusuve Skating og tókst það mjög vel.

Árið 2010 stofnaði Helga jafnframt skautadeild innan Íþróttafélagsins Aspar sem enn er starfandi og  þjálfar hún í dag því aðeins fólk með fötlun og/eða þroskaskerðingu. Deildin hennar dafnar vel og skautaíþróttin eflist dag frá degi. Ísland er nú í leiðandi stöðu í dag varðandi þróun Inclusive Skating kerfisins sem gefur öllum einstaklingum með fötlun kleift að taka þátt í keppni óháð fötlun.

Ég mun spyrja hana eftirfarandi spurninga

  1. Hvað varð til þess að þú hófst feril þinn sem skautaþjálfari?
  2. Hvernig er staðið að menntun skautaþjálfara – er hægt að læra þetta hérlendis?
  3. Hvernig er aðstaðan til skautaþjálfunar á Íslandi?
  4. Hvernig mót er Inclusive Skating?
  5. Hvernig sérðu skautaþjálfun fatlaðra/þroskaskertra fyrir þér í framtíðinni?