Markmið og efnistök

Markmið með fréttinni
Nú fer í hönd mikil bókatíð, Reykjavík er Bókmenntaborg UNESCO og stendur fyrir ýmsum viðburðum í októbermánuði. Meðal annars er hafinn landsleikur í lestri, nefndur Allir lesa (allirlesa.is) og Alþjóðlega barnabókmenntahátíðin Mýrin að hefja göngu sína. Í grunnskólum landsins eru margvísleg lestrarátök og safnavinna í gangi og markmið mitt með fréttinni er að segja frá þessum samfélagslegu verkefnum og leiða umræðuna að tengdu safnaverkefni, kallað Drekaklúbburinn. Takmarkið er að vekja fólk til umhugsunar um mikilvægi lesturs góðra bóka.

Hvernig sé ég efnistökin fyrir mér
Ég mun hefja fréttina á logoi Kennarans þar sem á einn eða annan hátt verður gefið í skyn að um fræðslutengt fréttaskot sé að ræða – fréttaskot sem getur staðið eitt og sér en vil þó að það sé eitthvað sem gefi til kynna að um fréttasyrpur sé að ræða, þ.e. að búast megi reglulega við slíkum örfréttum af skemmtilegu starfi úr heimi leik- og grunnskólanna.

Mig langar til að byrja á því að byggja upp spennu með því að koma með einhvers konar kveikju, gátu eða innskot sem vísbendingu um að fréttinn snúist á einhvern hátt um dreka án þess að gefa of mikið upp. Í framhaldi af því tali myndi ég vilja finna einhverja klippu sem kyndir undir áhuga áhorfanda á því að fylgjast með fréttinni til enda. Einn er sá dreki efst í huga mér núna, vinurinn úr Hobbitanum. Eitt leiðir af öðru og loks kemur í ljós að á Íslandi er starfræktur Drekaklúbbur.

Ég mun leggja af stað með þetta sem rannsóknarverkefni og taka viðtal við starfsfólk og nemendur í Breiðholtsskóla til leita svara við eftirfarandi spurningum:

  1. Hvar er þessi klúbbur?
  2. Út á hvað gengur klúbburinn?
  3. Hvert er skipulagið?
  4. Hverjir geta sótt um inngöngu í klúbbinn?
  5. Hvað þarf að uppfylla?
  6. Hvernig sækir maður um inngöngu í þennan klúbb?
  7. Hvers vegna ætti einhver að vilja ganga í klúbbinn?
  8. Hvernig klúbbur er Drekaklúbburinn? Ég vil passa að gefa ekki upp of mikið í fyrstu til að halda smá spennu – láta það svo koma í ljós undir það síðasta að þetta sé bókaklúbbur og þá yrði síðasta fræðslukornið um það hvaða bækur eru lesnar í Drekaklúbbnum.

Takan sjálf
Í huga mér eru nokkur skot að fæðast og viðmælendur mínir yrðu bókasafnsfræðingarnir í Breiðholtsskóla, nemandi sem er að hefja inngönguferlið og annar sem er komin með 3 meistaragráðuna í klúbbnum. Mig langar til að hafa svolitla dulúð yfir þessu svo mögulega hef ég viðmælendur mína í fyrstu hauslausa í, líkt og þeir óski nafnleyndrar en þegar á líður á fréttina fáum við að sjá meira af þeim. Kannski gengur þetta upp svona, kannski ekki.