A photographer is like a cod, which produces a million eggs in order that one may reach maturity. -George Bernard Shaw.

Varðfugl Ægis...

Þessi reffilegi mávur spókaði sig í Reykjavíkurhöfn og er í raun klipptur út úr stærri mynd þar sem varðskipið Ægir er í baksýn. Ég átti í smá vandræðum með að ákveða hvort fuglinn ætti að vera og einn og sér eða með varðskipið í baksýn en að lokum ákvað ég að leyfa honum að njóta sín einum á myndinni þar sem hann stendur vaktina ábúðarfullur. Heildarmyndina má sjá í PDF möppunni.

 

Vaskir menn...

Svo skemmtilega vildi til að björgunarsveitarmenn voru að koma í land við Kópavogshöfn um það leyti sem náms(kven)maður í Borgarholtsskóla átti leið þar um í leit að myndefni með ljóskasti og endurvarpi. Endurskinsefnabrjálæðið gerist nú ekki meira á ekki fleiri fermetrum...

 

Landakotsmaðurinn...

Það er pínu beggja heims að sjá stórum mannskugga varpað á Landakotskirkju að vetrarkvöldi.

 

Loftbóludraumur...

Fiskabúr Barnaspítala Hringsins hefur oft séð fífil sinn fegri og nokkur vonbrigði að sjá hversu lítið er hugsað um búrið. Það var því hálfgerður loftbóludraumur að ætla sér að taka eitthvað eftirminnilegt í þeirri heimsókn... en þó náðust nokkrar loftbólur á hraðferð sem á þessari mynd renna saman í litla neðanbúrsstrauma...

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

___________________________________________________________________

Vefhönnun: Unnur María Sólmundsdóttir