Hönnunin
Veggspjöldin eru hönnuð í stíl við nafnspjöldin og fyrri veggspjaldapakka. Ég er enn að leika mér með málshætti sem tengjast námi og kennslu en auk þess að skoða orðatiltæki, spakmæli og skilgreiningar. Hér er fyrir neðan eru 8 útvalin veggspjöld, 1 úr hverjum flokki en til hliðar má sjá tilraunaverkin í heild sinni. Það er svolítið bókaþema í uppsetningunni að þessu sinni...
Bók sem ekki er opnuð er bara múrsteinn úr pappír - Kínverskt máltæki

Að kunna ekkert er engin skömm en að vilja ekkert læra er skömm - Íslenskur málsháttur

Betra er brjóstvit en bókvit - Íslenskur málsháttur

Nemandi vs kennari - skilgreiningar orðabóka

Bókelskan mann skortir aldrei tryggan vin, hollan ráðgjafa, kátan félaga né áhrifaríkan hughreystara - I. Barrow

Bók er bezt vina - Íslenskur málsháttur

... að bera ávöxt - Íslenskt orðatiltæki

... að ríða af baggamuninn - Íslenskt orðatiltæki

___________________________________________________________
Vefhönnun: Unnur María Sólmundsdóttir