Unnur María Sólmundsdóttir
Veggspjöldin eru hönnuð í stíl við nafnspjöldin og gegnum gangandi er ég að leika mér með málshætti sem tengjast námi og kennslu. Ég notaði engar af ljósmyndunum sem ég tók í síðasta verkefni þar sem mér fannst vanta upp á að þær tengdust nægjanlega hugmyndum mínum um Gagnabanka Kennarans (og síðunni Kennarinn), og lokamarkmiðum mínum í náminu. Í staðinn studdist ég við þær teiknuðu myndir af uglunni sem fram voru komnar.
Veggspjöldin eru hugsuð sem ígildi auglýsinga fyrir vefinn www.kennarinn.is en þar sem tilgangurinn var ekki að búa til auglýsingu heldur frekar að koma hugmynd á framfæri, kemur slóðin eingöngu fram á fyrsta og síðasta veggspjaldinu. Það var þó hrikalega freistandi að henda slóðinni inn á hvert einasta veggspjald og mikil innri barátta að gera það ekki...
Eins og sést er ég orðin mjög hrifin af því að blanda saman letrunum Arial Roundet MT Bold (steinskrift/sans serif) og feitletruðu útgáfunni af American Typewriter (fótaletur/serif).
Þema veggspjaldasyrpunnar er Mennt er máttur:











___________________________________________________________