Unnur María Sólmundsdóttir

Fjögurra spjalda valið

Ég átti nokkuð erfitt með að velja á milli nafnspjaldanna en það er eitthvað við ugluna sem heillaði mig mest. Á öllum spjöldunum er ég að fikta mig áfram með formið "ugla" og skoða það sem heild eða hluta. Á lóðrétta spjaldinu setti ég inn ikon fyrir Facebook, Youtube og Twitter í tilbreytingar- og auglýsingarskyni, en hugmyndin er að vera með efni á þessum samfélagsmiðlum samhliða heimasíðu.

Eftir því sem ég velti þessu meira fyrir mér gæti ég trúað að lóðrétta nafnspjaldið yrði endanlega fyrir valinu. Ástæðan er m.a. annars sú að það er svo auðvelt að breyta því í ikon fyrir netmiðla og/eða koma því fyrir á minni hlutum eins og barmmerkjum, límmiðum og bókamerkjum sem dæmi.

Hvað litinn varðar þá sé ég fyrir mér að auðvelt sé að skipta honum út eftir tilefninu, þannig myndi blá ugla vera yfir námefnisflokk sem tengist sjónum, græn ugla náttúrunni o.s.frv.

 

 

 

 

___________________________________________________________

Vefhönnun: Unnur María Sólmundsdóttir