Unnur María Sólmundsdóttir

Hugleiðingar út frá mynd Sut Jhally, 

Dreamworlds 3

Jahá, segi ég nú bara. Allt frá því að MTV hóf feril sinn 1981 með tónlistarmyndbandinu Video killed the radio star hafa tónlistarmyndböndin orðið ein stærsta og útbreiddasta leið kvikmiðlunar í heiminum í dag. Tilgangur tónlistarstöðvarinnar var að fjölga tækifærum listafólks til að koma fram og gefa  almenningi færi á að tengjast tónlist á nýjan máta.

Tónlistamyndbönd birtast í öllum flokkum tónlistar, öllum gerðum menningar og flytja okkur allar gerðir boðskaps. Það var þó ekki fyrr en árið 1983 sem fyrsti hörundsdökki maðurinn birtist á skjánum en það var Michael Jackson með Billy Jean hittarann sinn, hann vann svo fyrstu tónlistarverðlaun MTV með lagið sitt Thriller. Í kjölfarið opnaðist leiðin fyrir fleiri dökka listamenn eins og Lionel Richie. Á níunda áratugnum voru myndböndin orðin nokkuð margbrotin og margir þekktir kvikmyndastjórar nútímans tóku fyrstu skrefin við gerð  tónlistarmyndbanda á þeim tíma. Í dag rekur MTV sjónvarsstöðvar á yfir 30 tungumálum í 160 löndum.

Líkt og með margt annað hefur þessi þróun frá upphafi verið samofin þörf manna til að nota beran konulíkama til að koma skilaboðum sínum, vöru eða list á framfæri. Það má í raun túlka það sem svo að kvennmannsbossar og brjóst hafi greitt götu tónlistamanna að augum og eyrum almennings. Það má líkja þessu við veiru sem ekki getur fjölgað sér á eigin spýtur, þarf hýsil til að ná útbreiðslu og brýtur sér því leið inn í frumu í gegnum veikleika hennar, nær þar að dafna uns að lokum hún veldur usla. Umfjöllunarefnið að þessu sinni er þessi tónlistaveira. Ekki svo að skilja að tónlist sem slík sé lífshættuleg en henni fylgja tónlistamyndbönd, og tónlistamyndböndum fylgir á stundum boðskapur sem getur ekki talist heilbrigður hvort heldur er fyrir sál eða líkama. Ekki er hægt að eitra fyrir veirunni nema að eitra fyrir frumunni líka svo trúlega verður kvenmannsholdið ekki aðskilið menningarkima tónlistarmyndbanda héðan í frá – en líkt og með ýmsa sjúkdóma er kannski hægt að lifa með þessu og jafnvel í framtíðinni að bólusetja gegn þeim.

Nú er ég hvorki femínísti eða rauðsokka svo þannig séð fyllist ég ekki stjórnlausum tilfinningaofsa þegar ég sé kynsystur mínar niðurlægja sig á þennan hátt en mér finnst þetta samt sem áður frekar þreytandi og einsleitt. Ég get þó alveg jákvæðu pólana í því að kvennlíkaminn einn og sér, og jafnvel einungis valdir partar af honum, skuli reynast svona geysiöflugt markaðstæki og finnst ákveðið vald felast í því samhengi. En við konur þurfum að læra að nýta þetta vald betur, og þá í okkar þágu en ekki láta tríta okkur eins og útsöluvörur sem allir hafa efni á.

Í tónlistarmyndböndum hafa konur margvísleg hlutverk allt frá því að veita kynlíf á flugvélasalerni og yfir í veita kynlíf eða annan unað í... tja - bara nefndu það. Á sviði finnur tónlistaveiran sér frumur í birtingarmynd dansara, hljómsveitarmeðlima, bakradda eða léttklæddra áhorfenda í fremstu röð. Þetta er náttúrulega úthugsuð snilld en hvaða skilaboð gefur þetta unga fólkinu? Sjálfsmyndir fólks eru ekki innprentaðar í genamengið, við lærum það sem fyrir okkur er haft. Það er ekki þannig að allar konur girnist hvern mann sem á vegi þeirra verður og séu þar að auki til í að deila þeim með nokkrum öðrum kynsystrum. Sú fantasía kemur úr heimi karlanna en endalaust birtingarmynd nektarinnar og jafnvel kynbunda ofbeldið virðist vera að síast inn sem norm í hugum óþroskaðra sála. Svo eru það kynjahlutföllin – hani í hæsnabúri var það sem kom upp í hugann og hlutföllin notuð til að ýta undir ótvíræð völd karldýrsins yfir stóði kvenna, sama hversu ungur hann er.

Og ef það er ekki ber dansandi kvenmaður sem undirstrikar yfirráð karlmannsins er það bifreiðin hans. Best er auðvitað ef þetta fer saman, bónaði bíllinn hans og bera konan hans (eða konurnar hans). Kjörímyndin felst svo í því ef næst að sýna beru konuna bóna bíl eiganda síns. Það er ávísun á athygli og gæðastimpill á verkum listamannsi ef hann nær að sameina þetta tvennt. Ekki skemmir ef þau enda svo í nokkrum tælandi skotum á salerninu þegar bíllinn er kominn með háglans.

Já, konan er partýdýrið, kynveran sem heldur öllu stuðinu saman milli þess sem hún þvær mótorhjól og bíla – nú já eða flugvélar. Ekki víst að MTV hefði náð þessum hæðum án hennar. Þá er óminnst á strippsúluna og kvennakynlífið. Þessari brengluðu birtingarmynd á vilja kvenna getur fylgt hatur, fyrirlitning og vanvirðing. Þetta er hættuástand og kynþáttafordómar koma einnig við sögu. Hér er tónlistaveiran farin að færa sig upp á skaptið og skaða hýsil sinn. Það er ákveðin þróun innan þessar þróunar því í upphafi sáust varla svartar konur í tónlistamyndböndum og það var ekki fyrr en með hipphopptónlistinni sem þær fóru að birtast - eða alla vega ákveðinn líkamshluti þeirra.  Ljótast fannst mér að sjá peningasturturnar og endurtekna skírskotun í vændið. Í huga mér, kallið það fordóma eða ekki, hlýtur það að hluta að endurspegla uppeldi eða aðstæður þeirra sem að myndefninu standa.

Í tónlistamyndböndum eru konur ekkert annað en hlutir notaðir til skrauts og þannig séð farið með þær eins og hverja aðra eign. Í heimildamyndinni er komið inn á það að hættan er sú að menn hætta að hugsa um konur sem vitsmunaverur með tilfinningar. Ég gerði mér í raun ekki grein fyrir því að ástandið væri alveg svona slæmt í tónlistabransanum og að konur væru aldrei sýndar sem listrænar, tilfinningasamar, gáfaðar og sjálfstæðar konur. Ég hef áhyggjur af þessu og mun hugsa mig tvisvar um áður en ég leyfi MTV að óma um stofuna mína eftirlitslaust.

Það er ekkert sem gefur til kynna að konur séu mennskar og vel komist að orði þegar sagt er að þær séu aðeins skuggamyndir eða útlínur, form sem menn fylla af eftir eigin löngunum og þrám. Og þetta hefur auðvitað slæm áhrif á sjálfsmynd ungra stúlkna. Það er ekki hollt að alast upp við þau skilaboð að tilgangur með jarðvist þinni sé að þóknast einhverjum perra þvert á eigin væntingar og þrár og það hefur einnig áhrif á konur sem reyna að ná frama í tónlistabransanum. Þær hafa margar hverjar smátt og smátt farið í sama farið, jafnvel byrjað sem settlegir og frambærilegir listamenn en fallið niður á bílaþvottastigið og reyna nú að ná athygli fyrir kynþokka og kúlurass en ekki fallegan söng.

En tónlistamyndböndin fylgir ekki bara veira heldur einnig ákveðin tegund bakteríu líka, algengust þeirra eru howtobearealmanococcus. Karlmennskan og ýkt sýn á hann er annar lykilþáttur tónlistamyndbanda. Hér felst hún í því að temja kvendýrið, hafa taumhald á því í búri eða jafnvel í fjötrum. Konur eru bornar í burtu og líkaminn notaður eins og mönnum sýnist. Þær neita aldrei heldur þvert á móti taka á móti ofbeldinu með ástríðufollum atlotum og bros á vör. Á sama tíma og sögur alvöru veiðimanna, alvöru karlmanna, felast í raupsemi og grobbi vegna hraða, stærðar, þyngdar og lengdar bráðarinnar, sögur þar sem alvöru hetja berst jafnvel í háskalegum aðstæðum við að draga björg í bú eru “veiðimenn” tónlistamyndbandanna að gorta sig yfir bráðum sem líkamlega áttu aldrei séns.  Þeirra bráð er líkamlega veikara kynið og hvaða karlmennska eða áskorun felst í því að veiða það? Hvaða alvöru veiðimaður fengi aðdáun fyrir að hlaupa uppi letidýr eða bráð sem núþegar er föst í gildru?

Það var rosalegt að sjá árásirnar á Central Park og í Mardi Gras göngunni en kom ekki á óvart miðað við það sem á undan var gengið. Og svakalega rosalegast fannst mér að hlusta á þessa ungu námsmenn, brenglaðir bæði í mynd og hugsun. Af því að kona er stolt og hefur ekki áhuga á þeim þá dreymir þá um að refsa þeim í gegnum ofbeldisfullt kynlíf – og staðreyndin er að þeir láta sig ekki bara dreyma heldur einnig framkvæma og fá jafnvel gælunöfn eða upphefð í kaupbæti. Það er skelfileg tilhugsun að skilin milli raunveruleika og fantasíu séu horfin og upp séu komnar kynslóðir sem sjá ekkert athugavert við það að ráðast á konur, hvort heldur sem er á götum úti eða heimilum þeirra.

 

Tónlistarmyndbandið mitt

Ég líkti tónlistarmyndböndum og leið þeirra að augum og eyrum almennings hér að ofan við veiru sem hægt væri að bólusetja gegn. Sú bólusetning gæti verið í formi lögbanns eða ritstýringar að einhverju tagi án þess svo sem að ég hafi hugsað þetta ofan í grunninn. Ljóst er að eitthvað verður að gerast áður en veiran drepur – því við vitum nefnilega að það gera veirur fái þær að grassera of lengi.

Nýlega sá ég myndband sem tröllríður íslenskum netheimum en það er myndband systra sem mynda grúbbuna Hljómsveitt og lagið heitir Næs í rassinn.

 

   

 

Í fyrstu fattaði ég ekki hvað væri eiginlega í gangi og efaðist um sálarheill þessarar ungu stúlkna og vorkenndi foreldrum þeirra. Bara titillinn sló mig út af laginu og svo tók myndefnið við – textinn sjálfur hvarf mér um algjörlega og sannaði ég með sjálfri mér að þegar heyrn og sjón keppast um athygli mína er augað ríkjandi og eyrað víkjandi. Það endaði með að ég slökkti á myndbandinu án þess að klára það og náði því boðskapnum ekki til fulls í fyrstu adrennu. Þegar ég var svo að velta fyrir mér hvaða umfjöllunarefni ég ætti að velja mér poppaði þetta myndband aftur í huga mér og nú útfrá ofanverðum pælingum um aðferðir fyrstu tónlistamyndbandanna. Duran Duran og Prince þurftu tónlistarveiru til að ná athygli því ekki íslenskar óþekktar systur? Þetta varð til þess að ég opnaði myndbandið aftur nú í morgun og ákvað að gefa því séns. Og viti menn, eftir að hafa samþykkt það á youtube (því þar kemur viðvörun um að efnið sé gróft) er ég að digga uppátækið þeirra því við fyrstu sýn virðist vera um ákveðna bólusetningu eða andsvar við meðferð á líkama kvenna að ræða. Ég er samt sem áður ekki búin að rýna þetta ofan í kjölinn og mögulega kemst ég að annari skoðun að því loknu. Að svo sögðu átta ég mig ekki alveg á því hvort systurnar falli í “best að selja skrokkinn til að fá athygli” flokkinn eða “best að andmæla meðferð kvenna í tónlistarmyndböndum stinga upp í þessa karla í eitt skipti fyrir öll” flokkinn, eða bara einhvern annan flokk en það verður gaman að kafa aðeins dýpra ofan í þetta uppátæki þeirra.

Heimildir

Dreamworlds 3 – Desire, sex & power in music video eftir Sut Jhally.

The history of MTV á youtube.com