Unnur María Sólmundsdóttir

Nice í rassinn og Kynþokkafull

Ég ákvað að hafa samband við systurnar Önnu Töru og Katrínu Helgu Andrésdætur í tengslum við rannsókn mína á myndbandinu þeirra Næs í rassinn. Í uppgötvunarferlinu fann ég annað myndband frá þeim sem ber heitið Kynþokkafull og er þessi samantekt byggð á þeim báðum - ásamt viðtalinu.

Við hittumst að morgni 3. desember síðastliðinn eftir að nokkrir facebookpóstar gengu á milli, og eftir að samkennarar mínir og deildarstjóri liðkuðu til svo ég kæmist frá vinnu. Það var mjög gaman að hitta stelpurnar, þær láta ekki aðra setja sér mörk, fjalla um tabú málefni eins og að drekka vatn, og óhræddar að fara út fyrir fyrirfram gefna ramma.

Ég sá mig því í raun knúna að gera slíkt hið sama og virði því engin tímamörk að þessu sinni heldur hætti þegar allt er komið fram sem mig langaði til að koma frá mér… og svei mér þá ef mér finnst það ekki bara pínu kynþokkafullt! :-)

 

 

Heimildir:

Myndbandið Næs í rassinn af youtube.com

Myndbandið Kynþokkafull af youtube.com

Viðtal við Önnu Töru og Katrínu Helgu Andrésdætur, tekið á kaffihúsinu Spírunni í Garðheimum miðvikudaginn 3. desember 2014.