Unnur María Sólmundsdóttir
Það er auðvitað morgunljóst að á upplýsingaöld er ekkert sem heitir líf án miðils enda er miðill margþættur og getur í raun verið allt frá reykjamerki og sendibréfi upp í linkum hlaðna tölvupósta og myndskilaboð. Sumum miðlum er ætlað að ná til fjöldans, öðrum til ákveðinna markhópa og enn öðrum til stöku einstaklinga. Miðlar og miðlun hafa mikil gildi í samtímanum, þeir eru margþættir, samtvinnaðir hver öðrum á sama tíma og þeir geta (sumir hverjir alla vega) staðið algjörlega sjálfstæðir. Tilfinningin er þó að best sé að þeir fari saman t.d. er tónlistaheimurinn á margan hátt háður fjölmiðlageiranum, og miðlunarformið bókin háð auglýsingum sem svo aftur þurfa prentmiðil eða útvarps- og/eða sjónmiðil til að koma sér á framfæri. Miðlun fer eftir þeim tíðaranda sem gripið er niður í hverju sinni, en einnig eftir samfélögum og menningarkimum, eða jafnvel ákveðnum viðburðum. Miðlun er oftast tengd fjöldaframleiðslu einhvers konar sbr. prentmiðlun, eða fjöldavörpun á borð við útvarp og sjónvarp. En það er hægt að miðla á marga vegu og senda skilaboð án þess að hátt fari. Þá eru mér tvö dæmi efst í huga þegar ég pára þetta. Annars vegar þegar móðir mín vann á líknardeildinni í Kópavogi þar sem krabbameinsveikt fólk liggur sína síðustu daga. Þetta er lítil heimilisleg deild þar sem starfsfólkið kynnist sjúklingum oft á tíðum mjög persónulega. Ef skjólstæðingur kveður í fjarveru starfsfólks er því gert viðvart næst þegar það mætir með því að kveikja á ákveðnu kerti/lukt í stofunni. Það er óviðeigandi að birtast blaðskellandi og hress inn í þannig aðstæður og með þessu móti er starfsfólk undirbúið að mæta syrgjandi fjölskyldumeðlimum um leið það mætir til vinnu. Þetta er ákveðin miðlun, þögul miðlun sorgar, orð eru óþörf og þú sem starfsmaður bregst rétt við. Hins vegar langar mig til að segja frá því þegar ég fór í 100 km fjallgöngu í Balkanfjöllum Búlgaríu fyrir 8 árum. Eftir því sem við komumst fjær borgum og nær sveitum fóru að birtast myndir af fólki á biðskýlum og á veggjum í strjábýli, eins var svört slaufa eða borði á einstaka bæ eða húsi. Þessar myndir voru af látnu fólki og hér var um dánartilkynningar að ræða rétt eins og við sjáum í dagblöðum á Íslandi, þetta var þeirra leið til að miðla fréttum á fátækum dreifbýlissvæðim þar sem aðgengi að prentmiðli er af skornum skammti. Og svörtu slaufurnar voru á heimilum þeirra sem misst höfðu fjölskyldumeðlim – þetta var ákveðin miðlun líka, þögul miðlun sorgar, og ef ég man rétt hengu þessar slaufur upp í heilt ár.
Miðlar geta verið af hinu góða og bjargað mannslífum sbr. tilkynningar um rýmingar vegna yfirvofandi ofsaveðurs, en miðlar geta líka tekið líf, og þá í fleiri en einum skilningi. Netið gerir þeim sem hafa illt í hyggju auðveldara að nálgast óþroskuð fórnalömb, mannorðsmorð er ekki hljómfagurt orð en bæði hægt að fremja í formi texta eða myndefnis á netinu. Svo langt hefur það gengið að fórnlömb taki eigið líf vegna þessa. Fyrir litlar sem stórar sakir (og jafnvel upplognar) hafa einstaklingar verið teknir fyrir í fjölmiðlum, sumt hefur blessað fólkið unnið sér inn en svo eru líka þeir sem eru teknir af lífi í orðræðunni án dóms og laga. Þá er stóra hundamálið, svokallað Lúkasarmál, efst í huga mér. Í dag geta allir miðlað. Þú gefur 6 ára barni þínu myndsíma og ferð svo að læsa að þér á salerninu heima hjá þér. Það er ekki að ástæðulausu sem sundlaugar hafa bannað síma. Þú gefur 16 ára barni fartölvu og finnur tónlistamyndbönd eftir það á Youtube. Samfara aukinni tækni þarf að efla skilning barna og ungmenna og jafnvel efla lagaumhverfið. Við erum komin svo langt áfram í tækninni án þess að þroski til að beita henni hafi eflst samhliða – það er í mínum huga hættulegt ástand. Ég veit ekki hvort börn muni nokkurn tímann ná nægilegum þroska til að eiga miðlunartæki eða hvenær rétti tíminn er til að hefja þá fræðslu. En þetta er orðið vandamál í grunnskólum í dag svo ég tali bara út frá eigin reynslu og eitthvað þarf að gerast. Frelsið er orðið svo mikið, það geta allir miðlað óritskoðuðu efni en færri sem geta farið með þetta frelsi. Veit ekki alveg hvar þessi þróun endar en ég óttast hana.
2. Ef ég ætti að búa mér til miðil sem hefði merkingu sem slíkur, hvernig ætti hann að virka?
Ég sótti um námið í Margmiðlunarhönnuninni í einum tilgangi en það var að byggja upp vefinn www.kennarinn.is , gagnabanka fyrir starfsmenn og nemendur í leik- og grunnskólum, og jafnvel framhaldsskólum ef svo ber undir. Ég verð að viðurkenna að það hafa svona stífan fókus á eina hugmynd miðlunar strax í upphafi hefur auðveldað mér að móta hana enn betur, afmarka mig í verkefnavali en sífellt bætast nýjar pælingar við. Kennarinn hófst sem facebooksíða fyrir tæpum 2 árum og átti alltaf að verða vefsíða. Hugmyndin náði þó nýjum hæðum strax á fyrra árinu, varð óvænt að vefriti líka sem hóf göngu sína ágúst 2014 og 6. tölublaðið í vinnslu. Ýmsar hugmyndir hafa vaknað nú í haust um að gera einnig fræðslumyndbönd. Heimasíðan mun verða gagnabanki og sem slíkur innihalda allt sem kemur að uppeldismenntun og námi, hvort heldur sem um er að ræða ábendingar um gott efni sem aðrir hafa gert bæði heima og erlendis, lagabálka er lúta að málaflokknum, tengla inn á allar skóla landsins, þjónustu sem málaflokknum tengist, námsleiðir, námsframboð og fleira í þeim dúr. Bara allt sem tengist uppeldis- og menntamálum í landinu – jafnvel dómsmál sem fallið hafa. Ég er jafnframt búin að átta mig á því að vefurinn getur verið gott meira en slíkur, hann getur líka verið vefverslun sem selur kennslutengdar vörur í póstverslun en eftir skólaferðalag til Bretlands áttaði ég mig á því að flestir þarlendir kennarar eru farnir að versla stimpla og sérhæfðar vörur á netinu. Í því skyni stofnaði ég aðgang að Teacherspayteachers.com fyrir nokkrum mánuðum og reikning hjá Paypal. Vefurinn getur orðið fræðsluvefur með margvíslegu útprentanlegu efni, fríkeypis eða í áskrift, og farvegur fyrir margþætta útgáfu í samstarfi við félagasamtök og stofnanir. Ég lét reyna á þá hugmynd í haust og landaði verksamningi við útgáfufyrirtæki um að gera lesskilningsverkefni við ákveðinn bókaflokk. Það er gaman að segja frá því að fyrsti pakkinn verður afhentur 1. janúar 2015. Fyrir mig mun vefurinn vonandi virka þannig að ég geti haft atvinnu af því í framtíðinni að halda utan um hann, semja og gefa út efni í gegnum hann. Í því skyni keypti ég einkafirmað Kennarinn útgáfa nú í nóvember og hyggst sækja um einkaleyfi á nafninu (og uglu logoinu sem fæddist hjá Rögnu í fyrra) fyrir jól. Fyrir aðra á vefurinn að virka þannig að ef upp koma vangaveltur um menntamál, eða þörf fyrir ítarefni ýmiskonar til kennslu, þá hefur Kennarinn svarið, líkt og ef upp koma vangaveltur um símanúmer eða heimilisföng er farið inn á ja.is.
3. Hvers konar áhrif ætti slíkur miðill að hafa, á einstaklinga og í samfélaginu?
Ég held ég sé búin að svara þessu í spurningu þrjú en miðillinn á að vera upplýsingaveita, hann á að vera traustvekjandi og fólk finna að ekki sé farið með neinar fleipur. Það verður fátt um persónulegar athugasemdir eða staðhæfingar á honum, til þess hef ég facebooksíðuna og Twitter en þá samfélagsmiðla mun ég nýta til hins ítrasta til að fá umferð inn á heimasíðuna. Miðillinn mun á engan hátt stjórnast af gróðrarhagsmunum en til að standa undir sér og vinnunni sem honum tengist þarf að vera einhver innkoma. Verði auglýsingar á vefnum verða það bara fyrirtæki sem tengjast konseptinu. Nói síríus, Bónus eða TM eru ekki að fara að tóna þarna inni á bannerum. Öðru máli gegnir um styrktaraðila vefrita, þeir munu fara á sérstaka styrktaraðilasíðu. Af vefnum verður hægt að komast inn á allar menntastofnanir í landinu, þetta verður síðan sem kemur fyrst upp í hugann þegar unglingar fara að leita sér að framhaldsnámi, leikskólakennarar að leita að jólaföndri eða grunnskólakennarar að sækja sér ókeypis ítarefni. Foreldrar geta leitað á vefinn eftir upplýsingum sem tengjast námi barnanna, leit að dagmömmum, kynnt sér mismunandi skólastefnur o.s.frv. Nemendur munu einnig hafa sinn hluta af síðunni en þar er ég enn sem komið er algjörlega blankó, hef um nóg annað að hugsa en þegar þar að kemur verður sá hluti byggður upp í samstarfi við börn og unglinga. Ég geri mér grein fyrir að vefmiðillinn verður ekki byggður á einum degi en sem gagnabanki þar sem óskað er eftir samstarfi við þá sem vinna við geirann verður vefurinn vonandi meira lifandi, gefandi og faglegri eftir því sem fleiri koma að honum.