Unnur María Sólmundsdóttir
Af lesefninu er nokkuð ljóst að klippitæknin hefur breytt kvikmyndaframleiðslunni frá því að vera eins skots myndskeið yfir í að vera saga eða frásögn, enda þótt myndavélin sjálf hafi ekki verið hreyfð neitt á fyrstu árunum. Eftir lesturinn þessa vikuna var ég þó hálfringluð, týnd í hafsjó hugtaka og ekki að meðtaka innihaldið að öllu leyti enda um dágóða íðorðasúpa að ræða – á ensku.
Til að átta mig betur á því hvað bjó að baki og meðtaka kaflann almennilega ákvað ég að draga þetta saman með hjálp Wikipedia, Youtube myndskeiða og fleiri heimilda. Í leiðinni rakst á enn fleiri hugtök og leyfði þeim að fljóta með, mér (og vonandi öðrum) til gagns og gaman í áframhaldandi vinnu. Þar sem þessi íðorðalisti er ekki fullkláraður læt ég hjá liggja að birta hann núna en stefni á að skutla honum inn í umræðurnar á morgun, miðvikudag.
Af lesefninu skildist mér þó að í kvikmyndaklippingum sem og öðrum viðfangsefnum eru sumar leiðir viðurkenndari en aðrar, og að sama skapi að til er fólk sem leitast við að beygja, sveigja og teygja óskráðar reglur og vinnubrögð til þess að komast að því hversu langt er hægt að ganga. Kallast öðru nafni þróun. Tilraunastarf klippigeirans hefur þannig einkennst og þróast að hluta til vegna uppreisnar gegn hefðinni – sem er auðvitað besta mál.
Ég skildi lesmálið á köflum sem svo að það hvíli endalaus sjónhverfingadulúð yfir bransanum og velti fyrir mér hvort klipparar séu hinir einu sönnu töframenn því í huga mér skiptust þeir á að vera allt frá afbragðs sjónhverfingafólki yfir í kyngimagnaða galdrameistara! Augað er jafnframt blekkt svo hressilega með atburðarás eða viðfangsefni í forgrunni, að leikstjórar komast upp með að skipta út baklandsheimum á sekúndubroti – án útskýringa. Þetta finnst mér mjög heillandi í heimi klippinganna (og skrítið í senn). En þó er tvennt sem stóð alveg upp úr hvað mig varðar en það er þegar að leikstjórar hafa dundað sér við að finna áþekka grafíska fleti sem endurtaka sig í gegnum myndskeiðin og tengja ramma og atburðarás saman, og þegar að skot með hliðstæðar atburðarásir innihalda andstæður hvort sem er í hreyfingum, litavali, umhverfi eða persónusköpun. Þá finnast mér tökurnar þar sem svipuð form, eða litir, renna nánast saman milli ramma hrikalega spennandi og allt þetta gæti ég hugsað mér að gera tilraunir með á næstu vikum og mánuðum.
Að lokum fann ég nokkur góð myndskeið sem gerðu mér lestur kaflans auðskildari og setti íðorðasúpuna í sjónrænna samhengi. Ég hvet áhugasama, og/eða skilningssljóa, að renna yfir þau – myndskeiðin hjálpuðu mér heilmikið.
Upphaf klippinga – fyrstu árin
(birtist einhverra hluta vegna bara sem slóð)
https://www.youtube.com/watch?v=6uahjH2cspk
Klipping mynda - Áherslur Sovétmanna
Og aðeins meira um hinar ýmsu klippingar
Meira um fyrirtækið Filmmaker IQ því hér er að finna fullt af auðskiljanlegu kvikmyndagerðarstöffi
Rannsókn á bakgrunni myndarinnar
Fyrsta rannsóknarefnið mitt verður ítalska myndin La vita é bella frá árinu 1997 eftir leikstjórann Roberto Benigni. La vita é bella nefnist Life Is Beautiful á ensku og útleggst á íslensku sem Lífið er yndislegt. Roberto Benigni reit handritið við annan mann, Vincenzo Gerami og fór jafnframt með hlutverk aðalleikarans í myndinni. Klipparinn er kona að nafni Simona Paggi en hún er jafnframt þekkt fyrir verk sín í Pinocchio (2002), Lamerica (1994) og The Keys to the House (2004). Simona Paggi hefur hlotið fjölda tilnefninga fyrir sín störf og m.a. var hún tilnefnd til Óskarsverðlaunanna fyrir klippingu myndarinnar – hlaut þó ekki. Simona hóf feril sinn sem kvikmyndaklippari árið 1984 og er enn að.
Roberto Benigni er fæddur á Ítalíu 27. október 1952. Auk ofangreindrar myndar er hann einnig þekktur fyrir myndirnar The Tiger and the Snow (2005) og Pinocchio (2002). Hann er kvæntur leikkonunni Nicoletta Braschi sem einnig leikur eiginkonu hans í myndinni Lífið er yndislegt.
Myndin La vita é bella er 116 mínútur að lengd og flokkast sem nokkurs konar dramagrín með rómantísku ívafi. Myndin var eingöngu tekin upp á Ítalíu og spannaði filman 3,138 metra fyrir klippingu. Myndin var tekin upp á (og linsur) 35 mm Kodak filmu.
Í stuttu máli fjallar hún um ítalskan gyðing, bókabúðareiganda sem lendir í fangabúðum nasista í seinni heimsstyrjöldinni ásamt syni sínum. Í myndinni er fylgst með því hvernig faðirinn reynir að gera fangavist sonar síns bærilegri og breytir hörmulegum aðstæðum í leik og spennandi atburðarrás fyrir barnið. Færri vita kannski að hluti af sögunni á rætur að rekja til fjölskyldureynslu leikstjórans en faðir hans hafði komist lífs af eftir 3 ára vist í slíkum fangabúðum nokkrum áður fyrir fæðingu hans, og er myndin að hluta til byggð á reynslu hans.
Myndin hlaut mikið lof gagnrýnenda og fékk Benigni sjálfur verðlaun fyrir besta aðalhlutverið á 71. Academic Awards kvikmyndahátíðinni auk þess sem myndin hlaut verðlaun í flokki dramatísrka mynda og í flokki bestu mynina af erlendu bergi brotnu (útlenskumældu ef svo má segja). Myndin var sýnd á Cannes kvikmyndahátíðinni árið 1998 og fór heim með Grand Prix verðlaunin. Auk þessa hefur myndin verið verðlaunuð fyrir tónlistina og verið tilnefnd til verðlauna fyrir leikstjórn, handrit og klippingu. Of langt mál er að telja til öll þau verðlaun og viðurkenningar sem myndin hefur hlotið í gegnum tíðina, en fyrir áhugasama má sjá þá upptalningu hér.
Myndin hefur einnig notið mikillar markaðslegrar velgengni og halaði inn tæpum 230 milljónum bandaríkjatala á sínum tíma, og varð þar með tekjuhæsta ítalska myndin frá upphafi og önnur tekjuhæsta mynd af erlendu bergi brotnu í Bandaríkjunum.
En myndin fékk einnig gagnrýni, og þá kannski helst leikstjórinn, fyrir að taka jafn skelfilega atburði og Helförina, og gera hana að dramagríni og þar með aðhlátursefni. Vegna þessa náði hún aldrei meira en 3 ½ stjörnu meðal gangrýnanda en skorar 8,6 af 10 mögulegum meðal áhorfenda á síðunni http://www.imdb.com/
Hugmynd að framsetningu
Varðandi meðferð mína á rannsóknarefninu næstu viku þá langar mig til að skoða þetta meistaraverk út frá þeim klippingum og skotum sem heilluðu mig hvað mest í yfirferð lesefnisins þessarar viku:
Kannski er þetta of yfirgripsmikið, kannski þarf ég að einbeita mér bara að einum þessara liða enda eru 6 mínútur fljótar að fyllast. Næsta vika leiðir í ljós hvernig gengur en einhvers staðar verður þessi skoðun að byrja svo þetta eru mínar pælingar.
Heimildir:
http://en.wikipedia.org/wiki/Life_Is_Beautiful
http://www.imdb.com/title/tt0118799/
http://en.wikipedia.org/wiki/Simona_Paggi
http://en.wikipedia.org/wiki/Roberto_Benigni