Unnur María Sólmundsdóttir

Enginn veit hvað átt hefur…

Kaflinn var bæði góður og upplýsandi og í raun var ansi margt sem kom mér á óvart. Ég hef að vísu aldrei gefið kvikmyndaheiminum annan gaum en í gegnum auga þess sem neytir svo það var mjög hollt að renna í gegnum þessar síður. Ég staldraði fyrst við allan þann fjölda sem kemur að einni kvikmynd! Þótt kreditlistar í lok mynda hafa svo sem ekki farið fram hjá mér þá einhvern veginn gerðu þeir það samt sem áður innihaldslega. Í fyrstu var ég að hugsa um að kortleggja þetta til gamans og ná að ramma hlutverk hvers og eins betur inn, sjá hver væri yfir hverjum og undir hverjum en þegar leið á lesturinn áttaði ég mig á því að það væri full seinlegt.

Líkt í námsefni fyrra árs eru skilin á milli listar og iðnaðar óljós hér og kaflinn sem slíkur rökstuðningur þess að kvikmyndun sé listform sem ólíkir listamenn móta og gera að sínu. En það er ansi margt annað óljóst eins og ábyrgð og verkaskipting, hver ræður í raun hverju og hver er réttur hvers - handritshöfunda sem dæmi. Hvenær hættir verk að vera hugmynd skálds og orðin eign leikstjóra? Eða framleiðanda? Mjög athyglivert þótti mér einnig að það væru beinlínis til stéttir sem endurskrifuðu handrit handritahöfunda og sú staðhæfing kaflans að það væri í raun regla fremur en undantekning! Persónulega finnst mér þetta gróft og gæti aldrei sætt mig við slíkt. Ef ég færi í kvikmyndaframleiðslu af einhverju tagi myndi mér trúlega best henta leið Inúítana og vera allt í öllu.

Áhrif leikstjórans eru mikil og það kom berlega í ljós við lesturinn á sama tíma og mér þótti merkilegt hvað hann getur í raun einnig haft lítið að segja ef svo ber undir. Persónuleg tengsl eru greinilega mikilvæg í geiranum og fjármagn og markaðssetning algjört lykilatriði. Gaman fannst mér einnig að lesa um lífsferil kvikmynda í plastbrúsasamfélagi nútímans og kannast vel við alla þá leikja- og auglýsingavöruflóru sem herjar á foreldra nútímans. Það var ekki fyrr en með myndinni The Truman Show sem ég áttaði mig fyrir alvöru á þeirri leyndu og ljósu innbyggðu auglýsingasálfræði sem á sér stað í kvikmyndageiranum. En svo blind var ég að það þurfti heilar 103 mínútur af dramagríni til að vekja mig til umhugsunar um þessi mál. Eftir þá mynd fóru beinar auglýsingar mikið fyrir brjóstið á mér á sama tíma og ég viðurkenni að mér þykir þessi markaðstækni algjör snilld þegar hún er vel gerð og nær að leika með tímaskyn neytandans eins og gert var í Leathal Weopan myndinni og getið er á blaðsíðu 36 í lesefninu. Eftir lesturinn áttaði ég mig á því að leyndar og ljósar auglýsingar eru kvikmyndageiranum nauðsynlegar og þolinmæðin gagnvart þeim trúlega skánað í kjölfarið, en ég er samt á því að snilldin felist í því að mæta þessum þörfum án þess að misbjóða neytandanum.   

Önnur veröld kvikmyndanna sem er mér nokkuð framandi eru þær myndir sem hafa yfir vísbendingum og brotum að geyma, þar sem gert er ráð fyrir nokkurs konar gagnvirkni við neytandann. Þetta finnst mér spennandi form kvikmiðlunar og kannski er það kennarahjartað sem þar kippist. Púsl, þrautir og gátur gefur efninu nýja vídd, meiri tilgang og ég væri meira en lítið til í að leika mér með slíkt formi nái ég einhvern tímann tökum á þessum miðli.

Það er geysimargt sem ég gæti haldið áfram að telja upp, kaflinn var algjör opinberun og eftir stendur að mér finnst ég sjálf hafa verið nokkuð andlega fjarverandi kvikmyndaáhugamanneskja fram að þessu, hugsunarlaus og allt að því dofin neytandi. Ljóst er að ég mun horfa mun gagnrýnni á kvikmyndir í framtíðinni allt frá því hvernig skot er römmuð inn, dýpt þeirra, andlitsdrættir leikara, sjónarhorn áhorfanda, skilaboð leikstjóra yfir fjölbreytttu í markaðssetninguna – sem mér finnst ekki síður spennandi vinkill í geiranum.

Samúð mín liggur líka ögn meira hjá rekstraraðilum íslenskra kvikmyndahúsa eftir þetta innlit. Blóðug hefur manni þótt bíóferð fyrir 5 manna fjölskyldu og þykir reyndar enn – en þegar bakgrunnsupplýsingar sem þessar liggja fyrir eykst skilningur á þeirra rekstrargrundvelli og heldur vil ég borga ögn meira fyrir poppið ef það er það sem þarf. Blessunin hún amma mín á Neskaupstað hefur til dæmis ekkert kvikmyndahús lengur ... enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.

Fall er fararheill

Mér tókst á minn einstaka hátt að eyða mörgum klukkutímum í að lesa námsefni næsta verkefnis en ekki þessa vikuna. Byrjar vel hjá mér veturinn en Fall er fararheill. Ég mun vera búin að kynna mér lesefnið fyrir umræðutímann á morgun og biðst velvirðingar á þessum klaufaskap.

En lesefni vikunnar (þótt rangt hefði verið) auðveldaði mér í raun á engan hátt að afmarka mig fyrir seinni hlutann heldur vakti með mér fleiri spurningar en svör. Ég hafði ekki mikinn tíma til að lesa alla kvikmyndasöguna en skimaði í gegnum efnið í leit að öllu og engu. Við yfirferðina kom upp í huga mér nokkuð sem kunningi minn og á áhugaleikari sagði mér fyrir nokkrum árum en við vorum að ræða um Íþróttaálfinn. Hann benti mér á að Latabæjarkonseptið væri í raun endurnýtt hugmynd og að til hafi verið bandarískt sjónvarpsefni (þættir eða kvikmynd) sem heitir Lazy Town og fjallaði einmitt um heimsókn utanbæjarmanns sem hristir all verulega upp í bæjarsamfélaginu.

Mér þótti þetta auðvitað mjög athyglivert þar sem að ég hélt að Latibær væri alíslensk hugmynd en hef ekki fundið neitt um þetta frumefni sem mig minnir að hafi verið svo gamalt að það var í svarthvítu. Í lesefni næsta verkefnis (!!!) var einmitt aðeins komið inn á endurritun handrita, að gamalt efni væri fært í nýjan búning og svo framvegis. Nú þætti mér mjög gaman að komast yfir þessa upprunalegu mynd og skoða út frá áherslum áfangans, myndbyggingu, dýpt ramma, hreyfingum myndavélarinnar, földum auglýsingum, markhópi og því tímabili sem hún kemur út. Ekki væri leiðinglegt að bera þessar 2 myndir svolítið saman og sjá hvort einhver skyldleiki er með þeim annar en titillinn. Ég leita því hálft í hvoru til ykkar Hlynur og samnemendur – vitið þið eitthvað meira um þetta mál? Hafið þið heyrt af frummyndinni? Mig langar að fóstra þessa hugmynd þar til ég heyri frá ykkur í annað kvöld og ef hún gefur ekkert af sér, eða samræmist ekki lesefni þessarar viku, finn ég mér nýtt efni eftir umræðutímann á morgun og set hér inn.

Þangað til getið þið skemmt ykkur yfir teiknimyndinni Scrub me Mama with a Boogie Beat útgefin af  Walter Lantz Productions árið 1941. Teiknimyndin er það eina sem ég fann undir Lazy Town á leitarvélunum annað en íslenska efnið og hún er víst einn mesti teiknimyndarasismi sem fram hefur komið en ég læt ykkur dæma um það.