Unnur María Sólmundsdóttir

Gerð heimildamynda

 

Ég hef ákaflega gaman að flest öllum heimildamyndum og dýralífsmyndir hafa sem dæmi heillað mig allt frá barnsæsku þótt sögulegt efni hafi átt meira upp á pallborðið hjá mér síðustu árin. Ég myndi t.d. frekar velja að horfa á þátt um keisaramörgæsir eða seinni heimstyrjöldina heldur en spennuhasarmynd eða grín, en hef í raun aldrei spáð í því hvers vegna. Þegar ég fer að velta þessu upp með sjálfri mér þá finnst mér ekki ólíklegt að þarna spili saman meðfædd forvitni í bland við fróðleiksfýsni – veit ekki hvort munur sé í raun á þessu tvennu. Það er ögn neikvæðari meining að vera forvitin heldur en fróðleiksfús, en kannski fer það eftir tilganginum sem liggur að baki? Eru kjaftakerlingar sem njósna um nágranna sína í litlum sveitaþorpum forvitnar eða fróðleiksfúsar? Gæti verið að heimildamyndir og áhuginn fyrir þeim, og/eða að gera þær, sé sprottinn af svipuðum hvötum og gáfu Gróu á Leiti sinn stað í íslenskri málsfarssögu?

Eða er grunnhvöt þeirra sem gera heimildamildir einungis hreinn og beinn áhugi fyrir að miðla því sem þeim liggur á hjarta? Jessica Yu kemur aðeins inn á þetta í pælingum sínum um hvaða element þurfi að vera fyrir hendi til þess að einhver ákveði með sér að gera heimildamynd um tiltekið efni. Hún vill meina að þær hugmyndir sem fylla þig mikilli persónulegri forvitni eru einmitt þær sem þig langar mest til að eltast við og hlú að. Jennifer Fox sagði ennfremur að ef þú GETUR hætt að hugsa um eitthvað tiltekið efni eða hugmynd sem þú hefur fengið eigir þú að labba frá henni, en þegar að efnið hverfur ekki úr huga þér þá fyrst eigir þú að taka næstu skref í átt til heimildamyndar.

Efnistökin eru mjög fjölbreytt í heimildamyndaheiminum og einn kvikmyndagerðarmannanna komst þannig að orði að lífið sjálft er svo fullt af furðulegum hlutum að auðveldara væri að skjalfesta það heldur en að skálda upp atburðarásir. Kim Longinitto komst einnig ágætlega að orði þegar hún sagði að heimildamyndir væru í raun kennslustund þar sem áhorfandinn gengur í gegnum tilfinningahlaðna reynslu sem opnar dyrnar að einhverju nýju. Heimildarmyndaformið er líka þannig að það getur fengið önnur hreyfimyndaform að hluta til að láni t.d. í formi kvikmyndabrots eða tónlistarmyndbands. Patricio Guzmán  viðurkenndi að semja þyrfti handrit að heimildamynd áður en farið er af stað – líkt og gert er með kvikmyndir. Af þessu er ljóst að mörkin á milli heimildarmyndar og kvikmyndar getur í einhverjum tilfellum verið mun minna en maður í fyrstu heldur. Þá eru heimildamyndir oft að hluta til leiknar þar sem verið er að endurgera eða endursegja liðna atburði. Einn viðmælandanna sagði að heimildamynd væri í raun málverk nútímans, það er verið að festa rauntíma í fast miðlunarform og þannig þjóni heimildamyndin sama hlutverki og málverkið á hér áður fyrr.

Mér fannst svolítið athyglisverður punktur þar sem kvikmyndagerðarfólkið ræddi um að viðmælendur opnuðu sig oft meira við myndavél en jafnvel sína nánustu. Það væri ekki vegna frægðarþorsta heldur hefði myndavélin hreinlega þann eiginleika að laða fram sögur sem búa innra með fólki líkt og kom skýrt fram í viðtalinu við mennina sem lifðu af í heimildamyndinni Touching the void. Þar leyfði spyrillinn þeim Joe og Simon fyrst að pústa frá nokkrum klukkustundum af staðreyndaupptalningu og þegar kom að því að þeir höfðu tæmt þann pakkann gerðust undraverðir hlutir er þeir sjálfir hófu að eigin frumkvæði að endurskilgreina þann tilfinningapakka sem þeir gengu í gegnum þessa hræðilegu daga í ölpunum.

Við áhorf vikunna velti ég því fyrir mér hvort heimildamyndir geti í raun alltaf hlutlausar? Ef ég er að segja sögu sem mér finnst áhugaverð, mun ég þá ekki alltaf á einn eða annan hátt draga fram mynd af því sem ég heillast mest af á kostnað annarar nálgunar? Eða jafnvel leiðast út í nálgun sem stofnar öryggi mínu ekki í hættu? Mér fannst ansi áhugaverður kaflinn sem fjallar um þá áhættu sem fylgir því að gera heimildamyndir, eða að koma fram sem einstaklingur í heimildamynd. Fjarlægðin sem fylgir því að horfa á eitthvað öruggur heima í stofu gerir það að verkum að maður upplifir ekki eins sterkt þann aðbúnað og umhverfi sem viðmælendur lifa við. Hættur á tökustað er vinkill sem hinn almenni áhorfandi gerir sér eflaust sjaldnast grein fyrir nema þá að kringumstæðurnar séu þess eðlis að allt sé nánast í beinni og kvikmyndagerðafólk í miðri hringiðunni. Ég man reyndar eftir einu nýlegu dæmi þar sem nánast sést hvar ungur maður er drepinn – en kannski er slíkt efni heldur flokkað sem frétt en heimildaefni? Heimildamyndir eru oft á tíðium notaðar til að fletta ofan af svikamyllum, rýna ofan í viðkvæm pólítísk málefni og jafnvel opinbera leyndarmál svo ekki eru alltaf allir sáttir. Þessu formi fylgir því ákveðin vanmetin hætta.

En aðeins tökufólk og leikstjóra. Umræðan um tengsl þess sem “leikstýrir” heimildamynd og þess sem “tekur” hana var mjög áhugaverð. Þarna þarf að ríkja gagnkvæmt traust og fólk að tala sama tungumálið. Einn viðmælanda orðaði það svo að hann sæi allt sem væri fyrir utan rammana og þyrft því að treysta upptökumanni sínum til að ramma það inn. Við gerð heimildamynda þróast söguþráðurinn í óstjórnanlegar áttir og tökufólkið þarf að vera á tánum öllum stundum til að fanga augnablikið. Ólíkt kvikmyndageiranum verður það ekki aftur tekið. Listrænt samspil tilveru og tökumanns er flókið hvað þetta varðar, lýsing er oft á tíðum frá náttúrunnar hendi, eða í algjöru lágmarki svo það er eins gott að vera vel með á nótunum. Eitt sjónarhorn í námsefninu var svo það að leggja ekki það mikla áherslu á hið listræna að sagan sjálf félli í skuggann.

Varðandi músík eða annars slags söng eða tónun þá virtust leikstjórarnir hafa skipta skoðun á því hvort slíkt bætti einhverju við formið. Dramatísk tónlist væri til dæmis of yfirdrifinn við dramatískt atriði í heimildamynd svo það er ljóst að hér liggja heilmiklar pælingar á herðum leikstjóra ekki síður en þegar kemur að tökum og lýsingu. Tónlist hefur tilfinningaleg áhrif og má því ekki á neinn hátt yfirtaka heimildarsenu, eða ganga þvert á hana heldur verður hún að ganga í takt við myndefnið og helst sameina það sem fyrir augu og eyru ber.