Unnur María Sólmundsdóttir

Gerð heimildamynda

50 heimildamyndir

Verð að byrja á því að segja hvað þetta er skemmtilegt viðfangsefni þessar vikurnar. Alveg að elska heimildamyndarýnina. Ég deildi líka slóðinni sem gefin er upp í námsefninu (http://freedocumentaries.org/) á facebooksíðunni Kennarinn Gagnabanki svona til að benda kollegum á mögulegan sjóð og fékk svona líka fína gagnrýni á slóðina. Ragnar Þór Pétursson liggur sjaldnast á síðunum skoðunum og hafði þetta um viðfangsefni okkar þessar vikuna að segja: “Ég efast ekki um að það er þarft kennsluefni að kenna börnum að bera kennsl á upplýsingar vs andupplýsngar en á þessari síðu (eins og flestum af hennar sort) ægir öllu sama; bulli, áróðri, aktívisma og raunverulegri heimildavinnu. Fyrir utan það að það efni sem þarna er og eitthvað vit er í sýnist mér allt vera stolið.”  Og svo segir hann aftur nokkru neðar: “Ég veit þetta er grátt svæði með mörgum aðkallandi spurningum – en það eitt að þetta efni er meira og minna stolið eða framleitt af einhverjum rugludöllum segir mér að maður láti þetta vera í kennslu.”

Væri gaman að heyra hvað kennara vorum og ykkur hinum finnst um þessi ummæli bros.

En alla vega, að þáttunum um 50 bestu heimildamyndirnar þá vakti athygli mína að strax í fyrsta viðtalinu var komið inn á það sama og í efni síðustu viku, en það var að til að ná fram hinni raunverulegu persónu sem manneskja hefur að geyma er lykillinn að elta hana á röndum þar til að gríman fellur. Hér var reyndar um nokkrar vikur að ræða, í stað nokkurra klukkustunda í tilfelli þeirra sem lifðu af í Touching the Void, en skilaboðin eru þó þau að þolinmæði og þrautsegja þurfi að vera til staðar í geðbanka þeirra sem hyggjast leggja heimildamyndagerð fyrir sig.

Ég áttaði mig ekki alveg á fyrsta brotinu eða hver viðkomandi var en ljóst að verið var að gera heimildaþátt um manninn sjálfan. Svo komu brot um Kalda stríðið, ástarsögu í skugga Alzheimers, gamlan mann “nauðfluttan” á milli landa og svo framvegis. Efnið spannaði ótrúlegan fjölda ólíkra heimildamynda og gaman að sjá flóruna setta upp á þennan hátt. Það var athyglivert að sjá hvernig myndin Nanok of the North var að hluta leikin heimildamynd til að sýna hvernig lífið var áður, og í stað þess að taka mynd af raunverulegum atvikum úr lífi fólks voru þeir sviðsettir. Mér fannst þá skilin á milli heimildamyndar og kvikmyndar vera ansi óljós hér…

Hætturnar sem geta fylgt því að gera heimildamyndir komu berlega í ljós í myndinni Beneath the Veil þegar kvikmyndagerðarkonan fer í dulargervi afganskrar konu til að vinna hluta myndarinnar. Ljóst er að hættur geta stafað úr mörgum ólíkum áttum, frá umhverfi, dýrum (sbr. górilluævintýri Davids Attenborough) en ekki síst mannskepnunni sjálfri.

Efni vikunnar var meira og minna staðfesting á því sem fram kom í fyrra efni en það voru þó nokkrir punktar sem má bæta við eins og vald miðilsins yfir máltöku og frösum sem dæmi. Er ég þar að vísa til enska þjálfarans sem garði frasann Do I not like that frægan í heimalandi sínu. Við köllum þessa menn og konur trendsettera ekki satt? Hver man ekki eftir “Já, sæll!”, “Gamle, gamle” og “Essasú” þótt þessir frasar komi frá annars slags myndmiðli en er nú til umfjöllunar.

Svo var þarna einn punktur sem fjallaði um það að heimildamyndir gætu verið of hræðilegar til að koma fyrir augu almennings – sem má kannski skilja sem svo að raunveruleikinn er of skelfilegur til að við höndlum hann (eða ákveðinn þjóðfélagshópur alla vega). Stutt er síðan að það var umræða í fréttunum um að stór hluti bangsanna sem koma á Bangsaspítalann um daginn hafi verið með Ebólu. Börn fylgjast mun meira með umræðunni heldur en við gerum okkur oft grein fyrir án þess að skilja heildarmyndina. Hafa ber í huga að allri upplýsingagjöf, hvort sem hún heitir fréttir eða heimildamynd, heimildamynd eða áróðursmynd, getur fylgt ofsahræðsla með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. Að þessu sögðu er því ekki skrýtið að til séu dæmi þess að stjórnvöld hafi hreinlega bannað efni til að koma í veg fyrir alsherjaróreiðu eins og gerðist með heimildamyndina The War Game. Sú fékk að hvílast í 19 ár áður en hún var sýnd.

Svo eru það vangaveltur um skilin á milli raunveruleikasjónvarps og heimildamyndar – eru skil þarna? Ég man eftir Wife Swap þáttunum þegar einhverjir þeirra voru sýndir á einhverri rásinni hér heima. Þarna er auðvitað ákveðin skoðun í gangi á því hvernig fólk bregst við í nýjum og jafnvel erfiðum aðstæðum, en þegar aðstæðurnar eru svona fyrirfram valdar, en ekki handahófskenndar, og þú veist nokkurn veginn út í hvað þú ert að fara – er það þá ekki frekar raunveruleikasjónvarp? Mér finnst munurinn alla vega óljós. Hér kemur líka fram að atburðarásinni er klárlega stýrt með því að velja fólk út frá skapgerð (eða skapgerðarbrestum) eins og kemur í efninu því fólkið í þáttunum var talið sérlega “extreme”…  og það selur.

Ég velti líka fyrir mér rannsóknarheimildarmyndunum sem kafa ofan í glæpamál til að komast í botn í þeim. Í mínum huga eru slíkar myndir farnar að teygja sig inn á starfsvið annarra stétta og ekkert endilega í neikvæðum skilningi. Ég velti því þá fyrir mér hvort að nýjar upplýsingar sem koma fram s.s. játningar í morðmálum standist fyrir rétti? Bara pæling.

Að lokum fannst mér áhugaverður punkturinn um góð áhrif heimildamynda sbr. heimildamyndin Super Size Me og hvernig McDonalds fyrirtækið notaði tækifærið til að bæta ímynd sýna og taka til í hráefnabankanum og vöruframboði.

Sem sé – mjög áhugavert efni allt saman en að mínu vali.

 

Dýralífsmyndir Davids Attenborough

Ég hef mikinn áhuga á því að skoða David Attenborough í minni umfjöllun. Í námsefninu var komið inn myndina Life on Earth og það væri gaman að skoða hana. Ég skrapp hins vegar á myndbandamarkaðinn í Perlunni í dag og fyrr en varði búin að kaupa 4 myndir eftir kappann: First life, Life in cold blood, Life in the freezer og Trials of life en fyrir á ég nokkrar aðrar.

Ég er ekki alveg búin að negla niður nákvæmlega hvað það er sem mig langar til að skoða. Mig langar þó ekki að fara út í það að bera myndirnar eftir hann saman þannig séð heldur miklu frekar að fylgjast með því hvernig David nálgast viðfangsefnin sín á rólegan, yfirvegaðan hátt á sama tíma og hann eys úr viskubrunni sínum. Ég ímynda mér að hann hafi lagt líf sitt í hættu á ferli sínum eins og í tökunni með górillunum og langar að kanna hvort ég finni fleiri slík dæmi. Frægt er þegar annar kunnur dýralífsþáttagerðarmaður, Stewe Irwin, lét lífið eftir að skata (stingray) hafði stungið hann í hjartaðstað svo ljóst er að fólk leggur sig í hættu til að ná góðum skotum í þessum dýralífsgeira. Svo væri einnig gaman að bera þessa 2 menn saman. Ég hafði einnig gaman af þáttum af Stewes Irwin en fannst hann þó æsingamaður ef svo má segja. Var stundum svolítið þreytt að horfa á hversu ör hann var á meðan David notaði aðra aðferðir til að halda spennu áhorfandans með sínu rólega yfirbragði og lágstemmdu röddu. Fari ég út í að bera þessa menn saman mun ég koma inn á feril þeirra í dýralífsgeiranum og áhrif sem þeir höfðu á málaflokkinn. Allar ábendingar um aðrar nálganir vel þegnar bros.