Unnur María Sólmundsdóttir

Í fréttum er þetta helst…

Á sama hátt og útvarp notar raunveruleg hljóð til að auka upplifun hlustenda notar sjónvarp myndir – þannig verða bæði myndir og hljóð hluti af samtali veitanda og neytanda. Eitt og annað þarf að forðast í þessum efnum sem öðrum og er þá helst að henda inn sjónmeti sem lítið/ekkert tengist umfjöllunarefni fréttarinnar, og eða setja saman mynd og lesefni sem keppa um athygli og skynjun áhorfenda.

Myndefni er ýmist lýsandi þar sem ein mynd segir meira en mörg orð en einnig er stuðst við myndaröð/hreyfimynd til að bera söguna – hvort heldur sem er, eru myndir hugsaðar sem sjónræn sönnun eða staðfesting. Í þessum efnum þarf einnig að huga að náttúrulegum hljóðum viðfangsefnisins og varast að yfirgnæfa þau.

Það sem kom mér kannski svolítið á óvart þegar kemur að þessum sjónrænu stafestingum eða sönnunum, eru smáatriðin og tengingarnar sem þurfa að vera á milli þeirra. Þá á ég við að þar sem komið er inn á að þegar rætt er um bíla frá Danmörku þurfi tengingu við landið til staðfestingar sbr. sýna danska fánann eða bílnúmerið. Í fyrstu fannst mér þetta svolítið ýkt, svona eins og óþarfa endurteknin? En það er kannski það sem þarf þegar sjónvarp er annars vegar. Kannski er nauðsynlegt að mata bæði augu og eyru svo innihald fréttar fari ekkert á milli mála. Finnst það samt pínu eins og að skrifa frétt um bátinn hans Nonna og setja: “Hér sjáið þið mynd af bátnum hans Nonna” undir mynd af bátnum hans Nonna. Hvað á Nonni eiginlega marga báta?

Ég hló líka upphátt þegar ég las kaflann um “sönnunarbyrðina”, að þegar þér tekst ekki að sanna allt sem þú heldur fram í sjónvarpi ertu í besta falli komin með góða útvarpsfrétt J. En ég velti því líka í framhaldinu fyrir mér hvaða leiðir útvarpsfréttamenn fara til að sanna mál sitt? Og geta þeir það almennt? Það er hægt að klippa allan djöfulinn saman og breyta röddum, annað eins hefur nú verið gert í útvarpsglensi.

Annað sem ég rak augun í og var aðeins rætt líka í staðbundnu lotunni það er þegar skipt er á milli  1. og 2. stigs hreyfiskota (á lélegri íslensku). Í lesefninu er greint frá því að til að mega svissa úr 2. stigs hreyfingu (þar sem vélar og linsur hreyfast) yfir í 1. stigs hreyfingu (þar sem vél/linsa er kyrr en viðfangsefni hreyfist) verði vélar/linsur að vera kyrrar svo áhorfanda misbjóði ekki  (bls. 17). Ég hef auðvitað ekkert velt þessu fyrir mér en finnst einhvern veginn fyrirfram að þessi regla hljóti að vera brotin – oftsinnis. Það væri gaman að spá í það í þessu rannsóknarverkefni.

Annað sem kom mér svolítið á óvart á sama tíma og mér finnst það sjálfsagður hlutur, en það er réttur áhorfandans til að vita uppruna myndefnis, þ.e. að vita hvort um sviðsett, endurgert eða raunverulegt myndefni er að ræða. Ég hef oftsinnis séð þetta, en vissi ekki að fréttamönnum bæri skylda að upplýsa neytendur með þessum hætti – og það þótt jafnvel sé augljóslega um sviðsetningu að ræða í tilfellum þegar rætt er um 25 ára gamalt morð eða fæðingu Jesú. Ég velti því þá aftur fyrir mér hvort þetta sé ekki stundum brotið líka? Og þetta með 0:2 sekúnda regluna hvað close up af dýrapörtum eða öðru miður penu varðar? Ég ætla ekkert að rengja þetta en þetta kemur spánskt fyrir sjónir. Eru Danir viðkvæmari í þessum efnum eða er þetta almennt virt? Ég myndi alveg þola að rýna inn i asnaeyra eða aðra líkamsparta í meira en 2 sekúndur…

Í heildina fannst mér lesefnið þægilegt yfirferðar. Fagorðin eru að verða kunnugleg og ljóst að fréttir, og fréttaklippingar lúta lögmálum tísku, tíðaranda og menningarheima eins og allt annað. Ég er þó pínu áttavilt með það hvort sjónvarpsfréttir og kvikmyndir lúti ekki sömu lögmálum – fæ kannski punkta um það í umræðutímanum.

 

Rannsóknarefnið

Samtímafréttin mín verður efni um dagbækur Björns Björnssonar fyrsta forseta lýðveldisins sem sýnd var í Ríkissjónarvarpinu þann 7. október síðastliðinn. Mig langar til að skoða það fréttabrot með hliðsjón af því tímabili sem kemst næst tímanum sem fréttin fjallar um eða upphafsár BBC sjónvarpsstöðvarinnar frá árinu 1953.

Fréttina má sjá hér.

Það eru þarna 9 ár í millum en það sem fréttirnar eiga sameiginlegt er að “eitthvað” er að taka sín fyrstu skref, annars vegar lýðveldið Ísland og hins vegar sjónvarpsfréttir. Mig langar til að bera saman fréttaskotin frá þessum tíma við eiginlegu nútímafréttina og skoða svolítið kynjahlutföllin í myndefninu en konur eru nokkuð áberandi óáberandi í þeim gömlu glefsum sem dregnar eru fram í frétt RÚV enda þótt viðmælandinn og fréttamaður þeirrar stöðvar séu reyndar bæði konur.

Hvort þetta nái að dekka 4 mínútur í umtali er erfitt að spá en til vara hef ég bakvið eyrun að skoða, líkt og í fyrstu rannsókninni, hvað það er sem gefur tímabilin til kynna og hvort eitthvað finnist þarna sem vísar útfyrir eiginlegu fréttina? Er einhver vísun í annað sem er að gerast í ytri tíma (samtímsögu?) tímabilsins sem um ræðir? Þá langar mig líka til að reyna að tengja valin dæmi við lesefnið og þá helst hvort ég finni áberandi jump cuts eða sem skemmtilegra væri, Harry Potter dæmi.  Er eitthvað þarna sem truflar skynvitin eða keppir um athygli þeirra? Við sjáum hvað setur.  Ég er hins vegar að lenda í smá brasi með Jing því forritið vistar gögnin bara á swf formi og mér gengur illa að breyta þeim í mov til að klippa til í Premier. Einhver ykkar er kannski með lausnina?