Unnur María Sólmundsdóttir
Auglýsingar voru orðnar þekkt fyrirbæri í sjónvarpinu þegar ég man eftir mér sem barn fyrir framan svarthvíta sjónvarpið heima. Heilögu stundirnar voru Línan, Tom og Jenny á mánudögum og Stundin okkar á sunnudögum – og mikið var nú biðinn löng eftir Húsinu á sléttinu stundum þegar Hugvekjan ætlaði engan endi að taka. En svo voru það líka auglýsingarnar – ég man eftir mér sem barn liggjandi á maganum og söngla með þeim en auglýsingar voru nokkurs konar mælisteinn, stund milli svefns og vöku, síðustu mínúturnar áður en maður var rekinn í háttinn.
Í fyrstu voru auglýsingar einsleitar, svarthvítar og döll eins og sagt er en á 6. og 7. áratugunum komu fram menn sem breyttu algjörlega um stíl. Þeir höfðu ferskar hugmyndir sem í bland við áræðni og vankunnáttu (ef svo má segja en í efninu kemur fram að þeir hafi ekki verið menntaðir markaðsmenn) stokkuðu þeir upp stöðluðum hugmyndum, gerðu tilraunir með auglýsingar á sama tíma og nálgunin varð hnitmiðaðari og meira einblínt á gæði.
Með tilkomu Sunday Times tímaritsins, eða þegar það hóf útgáfu sína í lit, gafst grafískum auglýsingahönnuðum loks tækifæri til að sýna hvað í þeim bjó. Það var svolítið gaman að sjá öll þessi myndbrot þegar litaðar auglýsingar tóku fyrstu skrefin en þó skar mig ótrúlega mikið í augu að sjá alla þessa punkta í fyrirsögnunum. Ég var á tímbili farin að telja þá og hvað ætli mikið af öðru innihaldi auglýsinganna hafi náð inn á meðan? Það er ótrúlegt hvernig mannshugurinn virkar stundum en ég festist trúlega í þessu vegna áherlsna í kennaranámi mínu að nota aldrei punkta í fyrirsögnum. Það vakti líka athygli mína að það var heldur ekkert samræmi í þessu, stundum punktur, stundum ekki en oftar þó í breskum auglýsingum en þegar tungumálið eða letrið var annað – þetta er kannski breskt fyrirbæri en nóg um fyrirsagnir.
Með tilkomu auglýsingagerðar sem faggreinar (ef orða má svo) þá fór efnið að verða vandaðra. Það var ekki bara einblínt á hvað þú sagðir, heldur hvernig þú breiddir út boðskapinn. Það var líkt og markmiðið væri ekki bara “að selja” heldur líka að gera það á “fágaðan máta”. Vangaveltur hófumst um framsetningu, staðsetningu og áhrif efnis á sálarstrengi áhorfandans – hvað vildu menn fá út úr auglýsingunni, hvaða tilfinningar átti að kalla fram? Þetta er þekkt í auglýsingabransanum í dag en á tíma fyrstu litaauglýsinganna var þetta ný og byltingarkennd nálgun.
Og svo þegar textahöfundar bættust í vinnuhópinn (að bandarískri fyrirmynd reyndar) fóru hjólin að snúast enn hraðar. Í kjölfar breyttra áhersla í auglýsingaheiminum fór fólk jafnframt að skilgreina sjálft sig (og aðra væntanlega) með vörunum sem það keypti. Það þótti nokkuð merkileg uppgötvun og með því að rannsaka fyrirbærið ítarlegar skildu auglýsingastofur enn betur þau markaðslögmál sem þau glímdu við. Í kjölfarið var farið að spila inn á upplifun, tilfinningar og snertingar sem dæmi og sem aftur endurspeglaðist í myndefni og myndbyggingu auglýsinganna. Mér fannst áhugavert að kynnast því að eitt stærsta auglýsingafyrirtækið í eigu Saatchi bræðra hóf sinn feril á því að rífa niður söluvöru í stað þess að byggja hana upp en það er þegar þeir tóku að sér áróðursherferð gegn reykingum. Fram að því voru tóbaksauglýsingar töff og vildir þú vera töff gerðir þú eins og stjörnurnar sem reyktu á skjánum og veggspjöldunum - hver man ekki eftir Marlboro manninum?
Sú herferð Saatchi bræðra var einnig einsdæmi að því er virðist þar sem bræðurnir notuðu óhefðbundnar leiðir til að ná til unga fólksins. Þeir áttuðu sig á því að ungir reykingarmenn tengdu athafnir sínar ekki við það að deyja úr lungnakrabba sem gamalmenni 40 árum síðar, heldur hafði annað í núinu meiri áhrif eða samskiptin við hitt kynið – “hver vill sleikja öskubakka” nálgunin. Svo var líka gaman að sjá hvernig glamúrlúkkið lét undan á 7. áratugnum og hinn hefðubundni smábæjar Jón Jónsson með sitt skakka bit varð meira áberandi meðal sumra auglýsingagerðarmanna - og þá má ekki gleyma breska húmornum og aulahlutverkunum sem vöktu athygli og seldi vöruna.
Ég veit ekki hvort það kom á óvart eða ekki að helstu brautryðjendur leiknu auglýsinganna enduðu svo í kvikmyndagerð en það sem var kannski forvitnilegt að þeir enduðu á því að gera garðinn frægan í Bandaríkjunum en ekki Bretlandi, heimalandi sínu. Kannski var breska íhaldseminn of mikill eftir allt en eitt er víst að vel var tekið á móti þeim í Hollywood svo ekki sé meira sagt. Breskir auglýsingafrömuðir tóku enda með sér öll þau smáatriði sem þarf að hafa í huga í auglýsingabransanum og færðu yfir í kvikmyndaheiminn – áhersla var lögð á smáatriði sem ekki þekktust fyrr, svo sem hvað varðar lýsingar og búninga sem dæmi.
Margaret Thatcher áttaði sig einna fyrst stjórnmálamanna á hversu mikill væri máttur auglýsinga og notaði sér miðilinn óspart í ímyndasköpun sinni og til atkvæðasópa. Hún gerði sér grein fyrir því að stjórnmál lytu í raun sömu lögmálum og hver önnur söluvara og að hún þyrfti að nálgast heim karlanna út frá tilfinningalegum og einstaklingsmiðuðum grunni. Enda fór þar húsmóðir sem búið var að mata á allskyns staðalímyndabundnu hreinsiefnamyndefni árum saman – nú var komið að henni að hreinsa og (heila)þvo í pólitíkinni.
Í námsefninu var farið vítt og breytt yfir sögu fyrstu litaauglýsinganna, í ljósmynd sem og hreyfimynd. Það var komið inn á áhrif húmorsins og að án hans nái auglýsingaefni ekki eins greiðum aðgangi að áhorfandanum. Í lokin voru nokkur hjartnæm augnablik þar sem fylgst var með einum frumkvöðlanna greina frá eftirsjám í afturliti yfir starfsferilinn – sú sjálfsskoðun fólst í iðrun yfir því að hafa stuðlað að óheilbrigðu líferni, því að fólk keypti óörugga bíla, byrjaði að reykja og fleiru í þeim dúr - sá þjáðist af siðferðisspurningum. Siðferði auglýsinga er alveg heill kapítuli út af fyrir sig sem ég ætla ekki að tjá mig um núna en velti bara fram einni spurningu: Hvenær hættir ábyrgð auglýsanda og ábyrgð neytanda hefst?
Af þeim auglýsingabrotum sem fylgdi vikunni þá skyldu sum þeirra eftir ýmsar tilfinningar, sumar spurningar eins og Unicorne myndskeiðin sem ég botna alls ekkert í, aðrar vöktu upp bros og enn aðrar hrylling sbr. ísbirnirnir sem duttu niður dauðir út um allt vegna loftmengunar. Mér hefði brugðið all mikið sem barni ef þetta myndefni hefði poppað upp á milli Ljómaauglýsingarinnar, Þykkvabæjarkartaflanna, Útvegsbankatröllsins eða Heinzstráksins.
Og talandi um íslenskar auglýsingar, rakst á þessa síðu fulla af gömlum íslenskum auglýsingum. Mæli með því að þú kíkir þarna inn næst þegar þig langar í nostalgíukast.
Mér er nokkuð ljóst eftir skoðun vikunnar að auglýsingum er ætlað að kalla fram ólík tilfinningaviðbrögð og jafnvel skilja áhorfandann eftir með spurningar – en það er svolítið að velkjast fyrir mér hver eiginleg skil eru á milli auglýsingar og óræðnar stuttmynda – eru einhver skil þarna? Sumt fannst mér á jaðrinum að geta kallast auglýsing yfir höfuð eins og “The Big Bad Wolf”, mennirnir með klofkollana – hvað var það??? Já, þetta var athygliverð samantekt og sitthvað um svo grófar auglýsingar að fólki af Ríó Tró kynslóðinni varð um og ó.
En svo voru auðvitað önnur sýnishorn sem minntu meira á það sem ég þekki frá barnæskunni, söguþráður, tónlist og jafnvel teiknimynd eins og kókauglýsingin með klæðskeranum – markhópur hennar var auðvitað börn enda börn stór áhrifavaldur þegar kemur að innkaupum, og þá erum við aftur komin að siðferði auglýsinganna sem ég ætlaði ekki að tala um. Börn og dýr eru svo aftur eitt og doltið ómótstæðilegt þema út af fyrir sig. Ég hafði mjög gaman að apaauglýsing-unni með banananum í sjónvarpinu, hló upphátt og allt, og hef einhvern veginn trú á því að auglýsingar með börnum og dýrum geti varlað klikkað – því þótt boðskapurinn fari framhjá fólki þá stendur myndefnið fyrir sínu. Samantekið fannst mér þó námsefnispakkinn að þessu sinni standa saman af bíla-, drykkja- og ilmvantsauglýsingum – var það bara mín tilfinning eða?
Ég velti því fyrir mér hvort hægt sé að rýna í auglýsingar með fleiri en einni gerð af gleraugum? Fleiri en einni tilfinningu eða upplifun? Er sá sem skrifar og hannar auglýsinguna að koma sínum boðskap á framfæri eða fer það eftir reynsluheimi áhorfandans hvernig hann upplifir efnið og meðtekur? Er hægt að misskilja eða endurskilgreina allt sem fyrir augu ber? Ég held það! Ef ég tek til dæmis bara bílaauglýsingu því af nógu er að taka í þeim efnum og vel eina skemmtilega til að fjalla um. Reyndar man ég bara eftir einni skemmtilegri bílaauglýsingu í augnablikinu því mér leiðast þær almennt en það er auglýsingin The Force - eða Mátturinn eins og hún mætti útleggjast á íslensku.
Hér er verið að auglýsa 2012 týpuna af Passat og auglýsingin var sett á Youtube viku áður en sjónvarpið tók að sýna hana, eða í febrúar 2011. Morguninn eftir voru yfir milljón manns búin að sjá hana og áður en sjónvarpsútsendingin hófst höfðu 8 milljónir manns séð auglýsinguna. Daginn eftir sjónvarpsútsendinguna höfðu yfir 15 milljónir manna séð hana og í lok árs 2011 leit út fyrir að auglýsingin myndi ná mesta netáhorfi allra tíma. Hvaða áhrif þetta hefur á sölutölur Passat bifreiða hef ég enga hugmynd enda markmiðið að skoða aðra þætti og tíminn aðeins 4 mínútur.
The Force notaði frægt Star Wars þema til að auglýsa nýju vöruna við undirspil The Imperial March eftir John Williams. Efnið er framleitt af Deutchs auglýsingaskrifstofunni fyrir Volkswagen bílafyrirtækið. Auglýsingin er rúm mínúta (1:02) og samin af Donald Jay Deutshc, en auk þess að vera auglýsingarhönnuður er hann jafnframt frægur fyrir spjallþáttastjórnun í Bandaríkjunum. Donny, eins og hann er kallaður, fæddist í nóvember 1957 og er því tvítugur þegar fyrsta Star Wars myndin kom út og eflaust hefur það æði gripið hann eins og aðra.
Litir eru mildir og bjartir og efnið höfðar til mín. Afhverju? Jú, þarna eru bæði barn og dýr í friðsamlegu umhverfi svo auglýsingin getur ekki klikkað, aðstæður eru heimilislegar og í raun ætti ég (eða sá aðili sem tekur ákvörðun um kaup á fjölskyldubíl hverju sinni) að vera sá sem talað er til - svo í raun er ég markhópur þessarar auglýsingar ekki satt? En í mínum huga fjallar hún um eitthvað allt annað og bíllinn verður mjög fjarlægt aukaatriði – en hvað klikkaði þá? Ég vil meina að það sé bara alls ekki verið að auglýsa bíl, og hvað þá þennan bíl! Nei, konseptið gengur ekki alveg upp og ég rökstyð það í næstu viku. Í þeirri leit styðst ég við eftirfarandi vangaveltur:
Kemur vonandi í ljós :-)
Góðar stundir,
Unnur María
Heimildir
The Men with the agency
Ítarefni í námsefnispakka:
APA_2010.mp4
kings_of_ads_001.avi (breytt í .mp4)
kings_of_ads_002.avi (breytt í .mp4)
Shots123.mp4
Shots132.mp4
Donny Deutsch af Wikipedia: http://en.wikipedia.org/wiki/Donny_Deutsch
The Force (advertisement) af Wikipedia: http://en.wikipedia.org/wiki/The_Force_(advertisement)