Ég áttaði mig á því að ég gat sagt hluti með litum og formum sem ég gat á engan hátt tjáð öðruvísi, hluti sem ég átti ekki orð yfir. - Georgia O'Keffee
Þetta er Steingerður, hún er af sérstöku safnandakyni og á ættir sínar að rekja til Uppstoppunarfjarðar í Fjarskanistan. Egg Steingerðar eru nokkuð sérstök eða ferköntuð og minna helst á viðarkubba. Þar sem þau eru hlutfallslega nokkuð stór stækka þau að hluta utan líkama hennar fyrir tilstuðlan fíberþráða sem hitna þegar þeir nema ljóstillífun í andrúmsloftinu.
Steingerður er harðger og sterklegur fugl, og þykir einnig nokkuð stórtækur í hreiðurgerð sinni. Munar karlfuglinn ekkert um að draga heilu lurkana til konu sinnar þegar sá gállinn er á honum. Safnandakyn er eina andartegundin sem vitað er að sett geti í brýrnar. Eftirfarandi myndir eru tilraunir til að túlka þennan merka fugl í ónáttúrulegu umhverfi sínu.



___________________________________________________________________