Ég áttaði mig á því að ég gat sagt hluti með litum og formum sem ég gat á engan hátt tjáð öðruvísi, hluti sem ég átti ekki orð yfir. - Georgia O'Keffee

Ég hyggist nýta mér námið mest í tengslum við 2 heimasíður sem mig langar að koma upp, flikkflakk.is (viðburðaþjónusta) og kennarinn.is (gagnabanki f. kennara). Bæði þessi lén á ég og stefni að því að koma síðunum uppá næstu 2 árum.
Auk þess er Frú Endurvinnsla gæluverkefni í umhverfisvernd og mögulega gæti hún eignast sína eigin síðu líka.
Margmiðlunarhönnunin opnar svo margar dyr og ég sé fyrir mér að nýta námið einnig í við uppsetningu í námsefnisgerð og nýta mér það í starfi mínu sem kennari t.d. setja upp stærri tölvu-, ljósmyndunar, eða myndbandanámskeið í vali á unglingastigi.
Hvað fjölskylduna varðar mun ég nýta mér færnina til að setja saman fjölskyldu-
myndbönd, koma myndabanka á gott ról og sjá sjálf um boðskort og fleiri uppsetningarverkefni.
Námið mun jafnframt auka sjálfstraust mitt á sviði hönnunar, gefa mér kost á að rækta áhugamálin frá nýju sjónarhorni, bæta við tengslanetið, auka skilning minn á heimi hönnunar og prentunar, skapa mér fleiri atvinnutækifæri og auðvelda við ritstörf.
___________________________________________________________________