Vatnsdælasaga á refli

Ég fór kannski heldur óhefðbundna leið þegar ég valdi að rannsaka listaverk sem er enn í vinnslu. Þótt refillinn sem slíkur er handverk byggt á sagnalist og myndlist þá er hann ekki fullgerður og því kannski betra að flokka hann sem yfirstandandi gjörning í raun. Ég gæti farið nokkrar leiðir í því að skoða refilinn um Vatnsdælasögu, t.d. skoðað hugmyndina að baki þessum tiltekna refli. Hver átti hugmyndina? Er stuðst við einhverja fyrirmynd? Hver er tilgangurinn með verkinu? Af hverju var saga Vatnsdæla valin? Hver teiknaði myndirnar sem verið er að sauma í þessa 46 m og hvaða tilgangi mun verkið þjóna á meðan á gerð þess stendur? Hvað verður svo um refilinn að honum loknum? Hvaða hlutverki gegndu reflar hér áður fyrr?  

Á heimasíðu Vatnsdælarefils, www.refillinn.is, er að finna heilmiklar upplýsingar um tilurð hans. Þar kemur m.a. fram að refillinn á sér fyrirmynd í hinn fræga Bayeux refli og heilmiklar upplýsingar eru til um hann á Netinu. Þá segir að reflar voru oftar en ekki leið ríkjandi afla til að koma upplýsingum áfram til almennings, upplýsingum sem þá voru gjarnan ýktar og til þess fallnar að ýta undir styrk og mikilfengleik styrjalda og sigur stjórnvalda.

Í framhaldsvinnunni hef ég hugsað mér að hafa samband við þá sem standa að gerð íslenska refilsins og taka viðtal þá en verkefnið er samstarfsverk Jóhönnu E. Pálmadóttur, bónda og handavinnukennara, Listaháskóla Íslands, Ístex og Textílsetur Íslands á Blönduósi svo líkast til verður um nokkuð auðugan og góðan heimildagarð að gresja hvað munnleg gögn varðar. Það væri sem dæmi gaman að heyra hvað hönnuðir refilsins voru að spá við gerð teikningana, hvort einhverjir straumar eða stefnur hafi verið þar í farabroddi og hvort litavalið eigi sér einhverjar sérstakar rætur. Einnig væri gaman að skoða kynjahlutfall þeirra sem unnu að undirbúningi verksins sem og þeirra sem taka þátt í vinnunni (koma og sauma) þar sem í lesefni er sérstaklega komið inn á að litið hafi verið á handverk sem ákveðna kvenska hefð (femninine pursuit) og talið öðru karlmannlegra listformi ómerkilegra (Exploring Visual Culture, bls. 35).

Þar sem vinna við refilinn hefur verið sett fram á námskeiðsformi væri mögulegt fyrir mig að setja mig í samband við einstaklinga sem hafa tekið þátt í gerð hans og kynnst upplifun þeirra.  Menningarlegu gildi refilsins, sem og fjárhaglegum ávinningi fyrir nærsamfélagið á Blönduósi, gæti ég einnig velt fyrir mér og tvinnað inn í rannsóknarvinnuna auk þess að skoða hvort og þá hvaða hindranir hafa verið í vegi við gerð hans. Af mörgu er að taka svo líklegast verður minn höfuðverkur helst sá að finna mér nógu afmarkandi sjónarhorn og hnitmiðaðar rannsóknarspurningar - og halda mig innan þess ramma.

Til að skilja verkið og efnisvalið betur er ég að hlusta á Vatnsdælasögu og lesa ritið Reflar í íslenskum miðaldarheimildum fram til 1569 eftir Elsu E. Guðjónsson en báðar heimildir gefa mér innblástur og betri sýn á það tímabil sem listaverkið tvinnast í. Þá bind ég einnig vonir við að bókin Íslenskur útsaumur, einnig eftir Elsu, nýtist mér í umfjölluninni – eftir lestur vikunnar kemur ekki á óvart að helstu heimildirnar eru bækur eftir konu.

Þegar ég er almennt að setja mig inn í viðfangsefni finnst mér gott að leita í Íslensku orðabókina, en í henni segir að refill sé "...lárétt veggtjald, langt og fremur mjótt, með útsaumuðum myndum...".  Þetta eru ekki ný tíðindi fyrir mig en þó kemur þar líka fram að myndirnar séu saumaðar með svokölluðum refilsaumi sem gefur mér aftur tækifæri til að rannasaka verkið mitt frá nýjum vinkli. Hvað er refilsaumur og hvað gerir hann frábrugðinn frá öðrum útsaumi? Þarf eitthvað sérstakt garn í refilsaum og ef svo er hvernig var það litað og unnið? Eins má líka skoða hvaðan orðið refill er ættað og hvort það eigi sér skyld orð í tungumálinu. Er það að lenda á refilstigum (villast af réttri braut) eitthvað tengt listforminu? Voru einhverjar sérstakar reglur (eða hefðir) um hvað mátti sauma í refla?

Á Wikiorðabókinni stendur að refill sé "... skrautofinn eða útsaumaður dúkur til að hengja upp til hátíðarbrigða..." (http://is.m.wiktionary.org/wiki/refill) og þá dettur manni í hug að fyrst refillinn teldist til skrautmuna getur þá verið að einhvers staðar hafi varðveist refill frá fyrri tíð? Ef hann var skrautmunur – hvort var hann þá handverk eða listaverk? Hvað gerir refla svona sérstaka? Höfðu þeir einhvern status, trúarlegs eða félagslegs eðlis? Aðrir þættir sem vert væri að skoða eru til dæmis hvernig kunnáttan varðveittist á milli kynslóða og þá kem ég aftur inn á námsefnið – voru það bara konur sem saumuðu refla, eða hvoru það kannski alls ekki konur? Var það með skráðum heimildum sem aðferðin varðveittist eða kepptust formæður mínar (eða forfeður) við að kenna börnum sínum handbragðið allt til dagsins í dag?

Ég hef vafrað um Gegni og timarit.is, auk þess að slá upp orðinu „refill“ í leitarvélum Netsins og heimsækja Borgarbókasafnið. Sannast sagna finnast ekki ýkja margar skriflegar heimildir um þetta listform - á íslensku alla vega en refill kemur hins vegar víða við í svörum á Vísindavefnum sem gefa aftur ákveðnar vísbendingar. Sem fyrr segir eru heilmiklar upplýsingar til um fræga refla, líkt og Bayeux refilinn, og líkast til mun ég tengja þau gögn eitthvað inn í umfjöllun mína um íslenska verkefnið. Að svo stöddu bind ég mestar vonir við að samtöl og heimsóknir til þeirra sem að Vatnsdælureflinum standa leiði mig inn á nýjar og góðar slóðir heimilda. Eftir stendur þó að ég er enn sannfærðari en fyrr að tiltekinn refill er eitthvað sem ég vil fjalla um. Þetta listform virðist í fljótu bragði hafa sloppið undan fjöldaframleiðslukló iðnvæðingarinnar og hefur eitthvað legið í dvala, en er greinilega að ná athygli nútímamannsins ef marka má þau 2 verkefni sem eru í gangi í dag, Vatnsdælurefilinn og Brennu-Nálsrefilinn.

Í ferðamálafræðinni eru til hugtök sem heita „slow food“ og „slow tourism“ þar sem fólki gefst nægur tími til að meðtaka menninguna líkt og innfæddir, og verða hluti af henni. Refill minn er nokkuð í anda þeirrar hugmyndafræði og mætti kannski kalla „slow art“? Ruskin og Morris, sem töldu handverkið vera vopn gegn fjöldaframleiðsludjöflinum (bls. 38) hefði líkað þessi nálgun, þetta listræna frelsi, þetta afturglit til fortíðar sem á sér stað hjá Textílsetrinu Blönduós (Vatnsdælurefill) og Sögusetrinu Hvolsvelli (Njálurefill).

Svo virðist sem ég hafi dottið niður á rannsóknarefni sem líklegra væri að finna í „kvennatímaritum“ en tímaritum um listir og menningu ef marka má lesefni vikunnar (bls. 40). En ég held með mínu efni og met það svo að ég sé í góðum höndum og á réttri leið. Munnlegar heimildir munu koma frá fagfólki á þessu sviði í dag svo það er ekki annað hægt en að hlakka til framhaldsins. Refillinn opnar svo sannarlega möguleikann á þverfaglegri umræðu um handverk og listir, umræðu sem virðist hafa skort svolítið upp á, á seinni hluta síðustu aldar.

Ég velti því líka fyrir mér hvort nokkuð annað íslenskt verk hafi náð að leiða Listaháskóla og Textílsetur, höfuðstöðvar hinna andstæðu póla listar og handverks, í eina sæng? Já, þetta verður spennandi rannsóknarefni...