Fagurfræðilegt, félagslegt og sögulegt gildi listaverks
Vörubíllinn hans pabba

(Mynd: Haraldur Hrannar Sólmundsson)
Í fyrsta tímanum fór hugurinn að reika um hvaða listaverk ég gæti tekið fyrir og hvers vegna ég ætti að velja það. Fyrsta hugdettan var gamall Vörubíll sem faðir minn hafði búið til sem barn að aldri. Í hugum okkar tveggja er þetta mikið listaverk, búið til úr gosflöskutöppum og spítuafgöngum en í augum annarra eflaust forljótur ryksafnari þó tapparnir gefi honum ákveðið sagnfræðilegt gildi sem tákn um drykkjaúrvalið í nóvember 1951.
Michelangelo og samferðarmenn hans hefðu hvorki skilgreint Vörubílinn né aðra gripi hagleiksmannsins föður míns sem list þar sem að á þeim tíma taldist almennt handverk ekki til eiginlegra lista enda var “…listmálun og höggmyndalist öðru hefðbundnu handverki fremra sem þáttur af æðri framleiðslu mannsins…” sé þetta lauslega gripið, pakkað saman og þýtt úr grein Neil Mulholland (Definations of Art and the Art World, bls:21). En þessi merkisgripur hefur engu að síður verið vel geymdur og trónir nú í hillu í vinnuherbergi föður míns, gnæfir þar yfir hann þar sem hann situr löngum stundum að semja og fara yfir próf sem starfandi húsa- og húsgagnasmíðakennari við Tækniskólann, skóla atvinnulífsins… situr þar á mörðum gosflöskutöppum og gefur myndlistasögunni langt nef.
Þegar faðir minn var lítill starfaði afi sem vörubílstjóri og eflaust hefur það haft áhrif á smíði snáðans. Faðir minn hefur smíðað og hannað hluti frá því að ég man eftir mér og eflaust hefur það haft áhrif á val mitt að fara í smíðakennaradeil HKÍ og nú margmiðlunarhönnun.
Gripurinn er í miklu uppáhaldi hjá okkur en er þetta nógu mikil list, nógu gott efnisval og nógu góð rök til að gera rannsóknarverkefninu ásættanleg skil? Gripurinn hefur eflaust ekkert fagurfræðilegt eða félagslegt gildi nema fyrir fjölskylduna og þá sem stúdera þroskasálfræði og fjölgreindir barna, og sögulega gildið er einnig nokkuð rýrt svo ég veit ekki…

(Mynd: www.ruv.is/files/imagecache/frmynd-stor-624x351/myndir/refill_2.jpg)
"...Þið megið endilega velja eitthvað sem tengist áhugamálum ykkar..." sagði kennarinn og þá datt mér í hug refillinn á Blönduósi, ferðaþjónustuverkefni Textílseturs Íslands. Ef ég hefði ekki valið smíðakennsluna hefði ég farið í textílmennt og á Blönduósi er verið að sauma Vatnsdælasögu á 46,2 m langan refil, 0,5 m á hæð. Vatnsdælasaga er ættarsaga Hofverja í Vatnsdal og gerist á 9.-11. öld en skráð á öldinni 13. Hún einkenndist af ástum og átökum og sögusviðið teygir sig m.a. til Svíþjóðar, Noregs og Skotlands.
Textílsetrið leggur af stað í þetta verkefni með það að markmiði að efla menningartengda ferðaþjónustu um leið og fornri útsaumshefð er gerð skil. Gestir og gangandi mega taka þátt í listaverkinu og er ég búin að ætla mér að renna þarna við síðan vorið 2012.
Það fylgja því miklir möguleikar að velja refilinn, sagan ein og sér er stórmerkileg og kemur inn á frásagnalist og sagnahefð okkar Íslendinga. Refillinn sjálfur og hugmyndafræðin á bakvið hann er einnig mjög áhugaverð því segja má að hann sé nokkurs konar forveri teiknimyndasagnanna þar sem heilu myndasögurnar voru saumaðar í þá og hengdar upp í skálum víkinganna, forfeðra okkar. Allir litir eru blandaðir samkvæmt gömlum hefðum, útsaumslistin er ævaforn og svona mætti fleira telja. Svo ekki sé minnst á skemmtanagildi refla fyrr á tíðum.
Ekki hefur mikið farið fyrir þessu verkefni í fjölmiðlum en líkt og ítrekun frá Ingimundi gamla, fyrsta ætthöfðingja Hofverja á Íslandi birtist samdægurs þönkum mínum eftirfarandi frétt á mbl.is: Njála sprettur fram í saumi:http://www.mbl.is/frettir/innlent/2013/08/31/njala_sprettur_fram_i_saumi/
Þetta segir mér bara að refillinn er að verða sjóðeitt listform á Íslandi og ég er spennt fyrir að velja þetta sem viðfangsefni verkefnisins enda hefur refillinn allt í senn fagurfræðilegt, félagslegt og sögulegt gildi... og margt, margt fleira.

(Mynd: www.weirdspace.dk/OsvaldoCavandoli/LaLinea.htm)
Einhverra hluta vegna datt mér næst í hug teiknimyndaverkið Línan eða La Linea. Kannski var ég enn smituð af teiknimyndasamlíkingunni í reflinum eða kannski eru þetta áhrif frá Hafdísi og talinu um að nú færum við bráðum að læra að teikna og rissa.En er Línan ekki annars einhvers konar listaverk?
Ég ólst upp við Tomma og Jenna á mánudögum, Stundina okkar á sunnudögum, sjónvarpspásu á fimmtudögum, stillimynd RÚV og Línuna. Línan var mjög eftirminnileg í einfaldleika sínum en hafði þó ákveðið félagslegt gildi sem sjónvarpsefni fyrir alla fjölskylduna. En hvernig gæti ég nálgast efnistökin? Hvernig listaverk er Línan og hvað get ég rannsakað?
Línan er vissulega einföld og einkennist af miklum gálgahúmor og minimalisma (eða heitir þetta eitthvað annað í myndlistinni??) Hvað segja fagurfræðin um slíkan einfaldleika? Ætli Hugleikur Dagsson hafi orðið fyrir hennar áhrifum? Hverjir ætli hafi verið áhrifavaldar í lífi höfundar Línunnar, Osvaldos Cavandolis? Ég gæti skoðað höfundinn og reynt að finna upplýsingar um hvaða strauma og stefnur hann aðhylltist, hvaða áhrif Línan hefur haft á samtímafólk hans, sjónvarpssögu okkar Íslendinga, teiknimyndaformið og jafnvel fært mig nær nútímanum því Línuna má nú finna í nýjum óritskoðuðum útgáfum á Youtube - hvaðan koma þær? Veit Osvaldo af þeim? Er hann á lífi? Hvaðan kemur tónlistin og hversu sterkan þátt á tal og tónlist í vinsældum hennar? Hversu útbreitt var þetta listform og þættirnir? Var Línan víðar notuð sem uppfyllingarefni í sjónvarp en á Íslandi?

(Mynd: www.historicimpressions.com/DurrowHL.jpg)
Já, það gæti verið svolítið gaman að skoða Línuna út frá fagurfræðilegum, félagslegum og sögulegum sjónarhornum en uppfyllir hún mínar væntingar til rannsóknarvinnunar? – Núna á refillinn eiginlega hug minn allan…
Meðan á myndasýningu Péturs Thomsen stóð datt mér í tvennt í hug og annað þeirra var trúartáknið "krossinn". Krossinn hefur verið túlkaður á mjög margan hátt á mörgum listformum og mikið af heimildum til um hann.
Meðan uppréttur krossinn táknar kristna trú táknar kross á hvolfi hið andstæða, og hvort heldur sem er hefur hann mikið félagslegt og sögulegt gildi. Á sama tíma og auðvelt er að finna viðamiklar heimildir um krossinn gæti reynst erfitt að afmarka sig nema að velja einhvern tiltekinn kross. Ef SVÓT greiningin (styrkleikar, veikleikar, ógnanir og tækifæri) væri tekin á þessa hugmynd eru hér mý mörg tækifæri til að gera verkefni skil, margar leiðir til að fjalla um viðfangsefnið – en ógnunin (og jafnvel veikleikarnir) einmitt sú að finna fína línu í umfjölluninni og ná að halda sig við hana.
Krossinn hefur trúlega verið unninn í flest listform sem fyrir eru s.s. myndlist, höggmyndalist, málningarlist, útskurð, krosssaum, prjón, harðangur, hekl, flúr o.s.frv., og efnistökin hafa einnig verið fjöldamörg s.s. leir, tin, eir, silfur, gull, tré, klakim húð… og guð má vita hvað!
Já, af nægu er að taka og sannarlega er hér um að ræða þóknanlegt viðfangsefni “af æðri tegundinni”. Fimmtándualdarmönnum hefði líkað þessi kirkjulega nálgun og eflaust verið tilbúnir til að greiða jafnvel fyrir hana. En þeir munu því miður hvorki meta verkefnið né leggja mat á matið…
Eftir fyrirgrennslan á Netinu heillaðist ég mest af 8. aldar keltneska krossinum (The Celtic Cross) sem fannst í Offaly sýslu á Írlandi:http://www.historicimpressions.com/Irish.htm
Þessi kross er þakinn myndum úr biblíusögunum og mikið listaverk. Mögulega hefur einhver írskur höfðingi, ættingi forfeðra minna dundað sér við hann í hjáverkum. Það voru nú einu sinni írskir bræður sem námu land á Skaganum um 880. Það er aldrei að vita nema þeir bræður Þormóður og Ketill Bresasynir hafi jafnvel litið gripinn eigin augum – eða snert hann! Það hefði ekki verið leiðinlegt fyrir þá því þetta er mikið augnayndi.
Orð Guðs skreyta krossinn arma á milli og það færi vel um mig með fartölvuna og einn kaldan á Celtic Cross, Hverfisgötu, við frekari ætternisstúderingar, rannsóknarvinnu og textapikk - en langar mig að fara lengra í þessum pælingum? – Ingimundur og Brennu-Njáll eru alltaf að banka uppá hjá mér...

Hin hugmyndin sem spratt í koll mér þegar Pétur Thomsen hélt erindi sitt var ljósmynd eftir kunningja minn, Hrein Magnússon. Eitt sinn var hann á ferð um landið og rakst á rollur, öfugu megin á blindhæð. Myndina fékk ég að nýta í námsefnisgerð fyrir um áratug og hefur sauðsháttur dýranna almennt vakið upp bros.
Þvílíkt snilldaraugnablik sem Hreinn fangaði. Í sjálfu sér hefur myndin þó kannski lítið sögulegt gildi – eða ég á alla vega erfitt með að koma auga á það í skrifuðum orðum. Kannski eftir þúsund ár í ritinu Þróun umferðarmerkingar frá torbúum til tæknialdar. Myndin sýnir þó hvernig rollur litu út, hvernig vegagerð var háttað, hvaða efni voru notuð í skilti og hvernig rafmagnslínur/símalínur lágu um sveitir landsins.Og eflaust er ljósmyndunin sem slík opinberun fyrir þá sem til þekkja til ljósmyndasögunnar.
Myndin virðist við fyrstu sýn ekki heldur hafa svo mikið félagslegt gildi annað en að með henni er þó hægt að kenna börnum og unglingum umferðarreglurnar, rétt og rangt, og ekki má gera lítið úr þeim fræðum öllum. Segja má að frá því sjónarhorni hafi verkið ákveðið forvarnargildi sem er jú jákvætt.
Hvað fagurfræðilegt gildi varðar á ég líka erfitt með að koma auga á það. Ég útiloka þó ekki að myndin gæti verið þessum gildum hlaðin en kunnáttuleysi mitt við að rýna í ljósmyndaverk hefur mjög hamlandi áhrif á þá rýni. Kannski hef ég eitthvað málefnalegra fram að færa í lok þessa áfanga – vona það en í dag er hún bara eins og hver annar góður brandari.
Mér er þó ljóst eftir fyrirlesturs Péturs að ljósmynd er ekki bara ljósmynd heldur gildishlaðið listform, og myndbygging, lýsing, tákn og táknleysa geta sagt heilmikla sögu. Þetta er bara ekki alveg mín sterka hlið, líður svolítið eins og ég sé litblind að rýna í myndir augnlæknisins, veit ekki hvað ég á að sjá svo líklegast er þetta ekki góð hugmynd!

(Mynd: http://usageorge.com/Wallpapers/Cities-Places/wallpaper/NY-statue-of-liberty.jpg)
Úr ljósmynd af fábrotnu sveitaumhverfi í eitt hæsta listaverk mannskynssögunnar, Frelsisstyttuna. Hvernig mér datt hún í hug? Trúlega að hluta öfgarnar innra með mér og að hluta skortur á ímyndunarafli. Mér hefur ekki dottið nein fáránlega frábær listaverk í hug til að fjalla um, ég er ekki vel lesin í þessum heimi en Frelsisstyttuna hljóta þó flestir á fimmtugsaldri að þekkja… og Sigurbogann… og Eiffelturninn…
Enda þótt tíminn minn og hugmyndaauðgi sé hvort tveggja að brenna upp þá geri ég mér grein fyrir því að Frelsisstyttan hefur allt í senn mikið fagurfræðilegt, félagslegt og sögulegt gildi. Þetta mikla listaverk, gjöf Frakka til Bandaríkjamanna, tákn sjálfstæðis, frelsis og býður ferðamenn velkomna. Ég hefði svo gjarnan viljað kynna mér þetta mikla koparverk betur en hugurinn leitar alltaf aftur til refilsins. Ég sé ekki tilganginn í því að leita lengur…
Refillinn uppfyllir áhugámálin mín og líkt og kemur fram í “proceduralismanum” (bls. 28) gefur hann öllum möguleika á að verða listamenn – gegn því að fylgja ákveðnum reglum. Pablo Picasso hefði orðið ánægður með framtak þeirra í Textílsetrinu, þar verður handbragði almennings stýrt í rétt átt og fjölda fólks gefst tækifæri til að skilja eftir spor sitt í sögu íslenskrar handverksmenningar.
Og þarna er sagan líka farin að naga í handarbökin á sjálfri sér því á sama tíma og samtímamenn Michelangelos börðust gegn þessu og töldu list einungis á færi örfárra einstaklinga að uppfylltum ströngum kröfum og reglum, og gerðu handverki almennings lægra undir höfði, þá hefur öldungis orðið algjör kollsteyping á því.
Kannski tek ég bara karl föður minn með mér í bíltúr á Blönduós þegar þar að kemur og kenni honum á sjötugsaldri að þræða nál...
Bestu kveðjur, Unnur María