Safety last eftir Harold Lloyd
Lesefni vikunnar og þöglu myndirnar
Þegar ég hafði gert upp með sjálfri mér að velja þögla mynd sem viðfangsefnið að þessu sinni skutust 2 myndbrot upp í huga mér. Það fyrsta var klukkuatriðið með Harold Lloyd og hitt var atriði þar sem Charlie Chaplin fer inni í risastór tannhjól vélar til að gera við hana – bæði atriðin settu sitt mark á kvikmyndasöguna og urðu nokkurs konar einkennismerki þessara frægu kvikmyndagerðarmanna. Myndbrotið með Chaplin inni í vélaverkinu er úr myndinni Modern Times frá árinu 1936 en atriði þar sem Lloyd hangir niður úr klukku á háhýsi er úr myndinni Safety last sem kom út árið 1923. Ég man eftir að hafa horft á þessi atriði sem smástelpa en seinni myndin, Safety last, varð á endanum fyrir valinu og verður því viðfangsefnið mitt að þessu sinni. Á íslensku nefnist hún Klukkan tifar.
Ef almennt er spurt hvað kvikmynd sé segir Ásgrímur Sverrison kvikmyndafræðingur kvikmynd vera sögu í myndum þar sem samtöl verða aukaatriði og myndirnar aðalatriðið, og að það sjáist best í hreinasta formi kvikmyndanna eða þöglu myndunum (Heimild) Einkenni þessara mynda er að engin hljóðupptaka eða samtöl eiga sér stað. Skilaboðunum er komið til áhorfenda í formi líkamstjáningar og með talspjöldum. Sýningar þöglu myndanna voru þó ekki með öllu hljóðlausar því leikhljóð af ýmsu tagi voru notuð og tónlist (oft lifandi) var leikinn undir meðan á kvikmyndasýningunni stóð. Þetta samrýmist ágætlega lesefninu þar sem komið er inn á það að tengingin á milli myndar og umræðu hafi verið þungamiðja þess að skilja sjónarænar listir allt frá fornöld (Visual Rhetoric, bls. 134).
Sem fyrr er velt upp ýmsum þáttum er tengjast sjónrænni menningu og að þessu sinni er rýnt í retórískar vangaveltur, eða spurningar sem settar eru fram þegar spyrjandi býst ekki við svari - og þá kannski meira á heimspekilegum nótum til að koma upplýsingum á framfæri. Þannig eru retórískar spurningar oft nefndar „ræðuspurningar“. Komið er inn á virkni samskipta og gildi hins skýra, eða einfalda. Greint er frá „samskiptakenningunni“ sem skýrir virknina þegar upplýsingar eru fluttar frá sendanda til viðtakanda og mikilvægi þess að skilaboðin komist á skiljanlegan máta á leiðarenda.
Segja má að þöglu myndirnar geri nokkuð mikið út á hið gagnstæða, eða þegar upplýsingarnar á einhvern hátt rata ekki sem skyldi frá sendanda til viðtakanda eða brenglast í meðförunum og upp koma hin ýmsu form af grátbroslegum misskilningi. Í lesefninu er svo haldið áfram að skilgreina samskipti og erfiðleikana sem gjarnan fylgja þeim. Þá er komið inn á að erfiðleikarnir eigi sér ekki endilega stað vegna tvíræðni þess sem sagt er heldur vegna þess að einstaklingar haga sér ekki í samræmi við úthlutuð hlutverk sín (Visual Rhetoric, bls. 137). Harold Lloyd notar þetta töluvert í mynd sinni og spilar viljandi (og kannski einnig sum staðar óviljandi?) inn á upplýsingaskortinn strax í upphafsatriðinu þegar áhorfendur eru látnir halda að dagar söguhetjunnar séu taldir þar sem hún er stödd í fangelsi að kveðja grátandi konur með gálga í baksýn. Svo kemur í ljós að viðkomandi er á brautarstöð og gálginn nokkurs konar póstburðarlykkja sem hægt er að festa gögn á og koma til lestarstarfsmanna í lestum á ferð. Í stað þess að verða endalok er þetta upphaf mikils ævintýris. Þarna er Lloyd að spila inn á hið retóríska eðli kvikmyndarinnar eða að koma þeim skilaboðum á framfæri sem hann vill (Visual Rhetoric, bls. 140) – og snúa svo út úr því með tvíræðni. Slíkan útúrsnúning má jafnvel finna í titli myndarinnar sem er afbökun á enska orðatiltækinu Safety first.
Að öðru leyti fjallar Safety last um ungan mann sem fer til stórborgarinnar að afla fjár svo hann geti gifst ástinni sinni sem býður hans í sveitinni. Það gengur ekkert allt of vel en til að fela það fyrir kærustunni sendir hann henni reglulega dýrar gjafir. Vegna þess hversu vel honum er farið að ganga ákveður hún að heimsækja hann óvænt í stórborgina. Hann starfar sem láglaunamaður í vefnaðarvöruverslun og þarf að finna leiðir til að afla meira fjár til að standa undir væntingum framtíðarkonu sinnar. Lloyd berst til eyrna að verslunin vanti meiri auglýsingu til að bæta viðskiptin og er mikið fé í boði fyrir réttu hugmyndina. Honum dettur í hug að fá fiman félaga sinn til að klifra upp háhýsið sem verslunin er staðsett í og laða þannig fólk að. Yfirmennirnir samþykkja það en kaldhæðni örlaganna, og laganna varða, háttar því þannig til að hann endar með að gera það sjálfur - og lendir í nokkrum hremmingum.
Í grein Rampleys kemur fram að samlíkingar séu eitt áhrifaríkasta verkfærið í sjónrænni framsetningu ásamt ýktum andstæðum. Segja má að Lloyd takist vel upp í þessu og spilar saman sveit og stórborg, ríkidæmi og fátækt, ást þeirra hjónaleysa og óvild annarra s.s. lögreglu og milliyfirmanna, hæð og lægð. En það er einnig komið inn á kyndbundna stöðu og hlutverk í greininni, og mikilvægi stöðu þess sem segir hlutina. Félagsleg staða skipti þannig miklu máli og tekið til áhrifa hins lærða vs. hins ólærða, aldna vs. hins unga, karla vs. kvenna (Visual Rhetoric, bls. 137). Þannig hafa ríkar konur í verslunarleiðangri, lögreglan og yfirmenn Harolds í myndinni örlög hans í hendi sér, meðan hann aftur og hans eigin dugnaður eða dugnaðarleysi ræður afdrifum konunnar sem unnið hefur hjarta hans. Þá eru kynbundnu hlutverkin mjög áberandi þar sem ungi maðurinn fer að heiman að leita frægðar og frama í stórborginni meðan unnustan situr stillt eftir heima í sveitinni. Afgreiðslufólkið í vefnaðarvörubúðinni eru allt karlar, sem og stjórnendur, en þó eru það bara konur sem eru að kaupa efni til saumagerðar. Í myndinni er þó að finna einn kvenkynsstarfsmann sem hefur það ábyrgðafulla verkefni að pakka inn tuskunum sem keyptar eru. Í heildina verður þetta pínu kómískt sjónarspil fyrir nútímakonu en þó alveg í anda þess tímabils sem sagan gerist.
Aftur að Harold sjálfum þá hét hann fullu nafni Sir Harold Clayton Lloyd. Hann fæddist 20. apríl 1893 og var einn vinsælasti og áhrifamesti grínleikari á tímum þöglu myndanna. Lloyd framleiddi um 200 myndir, bæði þöglar og með tali (talkies) á árunum 1914-1947. Hann varð frægastur fyrir túlkun sína á úrræðagóða gleraugnagláminum sem var í sífelldri leit að frægð og frama í anda 3. áratugarins í Ameríku.
Myndir hans innihéldu yfirleitt mikinn hasar, eltingaleik og áhættuatriði, og fyrir það varð hann hvað frægastur. Og atriðið þar sem hann hangir í stóru klukkunni utan á háhýsinu í umræddri mynd er eitt frægasta atriði kvikmyndasögunnar. Harold Lloyd gerði mikið af þessum áhættuatriðum sjálfur og slasaðist m.a. árið 1919 í sprengjuatriði sem olli því að hann missti þumalfingur og framan af vísifingri hægri handar – í umræddu klukkuatriði fór hann úr axlarlið.
Harold Lloyd náði aldrei eins miklum frama og Charlie Chaplin en framleiddi mun fleiri myndir engu að síður og halaði inn mun meira fé eða 15,7 milljón dala á móti 10,5 milljónum Chaplins. Árið 1924 stofnaði Lloyd sitt eigið kvikmyndafyrirtæki, The Harold Lloyd Film Corporation og dreifði myndum sýnum í gegnum Paramount og Twentieth Century Fox. Hann stofnaði jafnframt leiklistaskólann Academy of Motion Picture Arts and Sciences.
Harold Lloyd var afkastamikill fyrstu árin og gaf að meðaltali út 2 myndir út á ári fyrstu árin en þegar nær dróg árinu 1938 komu að jafnaði út myndir eftir hann annað hvert ár. Vinsældir hans tóku að tala eftir því sem lengra leið á milli mynda og loks fór svo að hann seldi landeignir kvikmyndafyrirtækisins árið 1937. Þegar talmyndir komu til sögunnar um og upp úr 1930 urðu þáttaskil í kvikmyndasögunni eða eins og Ásgrímur Sverrison kvikmyndafræðingur orðar það: „Það glatast ákveðnir hlutir þegar menn taka upp talmyndina á sínum tíma og það tók kvikmyndagerðarmenn langan tíma að ná aftur tökum á þessu hreina erindi kvikmyndalistarinnar - það er að segja sögu með myndum.“ (Heimild)
Harold Lloyd lést úr krabbameini árið 1977 en myndir hans og minning um frábæran og hæfileikaríkan kvikmyndagerðarmann lifir á margvísan máta í menningarheimi nútímans. Ekki verður farið nánar út menningarlegu áhrifin í þessu erindi en það er trúlega sami hæfileiki sem einkennir Lloyd og gríska ræðumennskuformið; hæfileikinn til að hreyfa við, sannfæra og skemmta áhorfendum (Visual Rhetoric, bls. 137). – sem fært hefur manninum ódauðleika.
Fyrir þá sem vilja kíkja á kómíska thrillerinn Safety last má finna hann hér.