Um gildi miðlunarverka

Lesefnið þessa vikuna...

var nokkuð auðmelt og nær raunheimi undirritaðrar en fyrri pistlar hafa verið. Síðustu áratugina hefur orðið gífurleg þróun í tækjum og tækni sem snýr að ljósmyndun og kvikmyndun, þróun sem ég hef náð að fylgjast með í rauntíma en ekki lesið um í bókum. Langafi minn heitinn átti forláta upptökuvél og mér er það í fersku minni þegar hann og langamma voru að umbylta litlu stofunni sinni til að koma fyrir tjaldi og vél, til að sýna okkur niðjunum glefsur úr ferðalögum sínum. Þannig eru jafnframt til myndskeið af mér á „þöglumyndaforminu“ allt aftur til ársins 1977 – eða jafnvel fyrr.  

Á þeim tíma var upptökuvél í einkaeign sjaldgjæf, mun sjaldgjæfari en VHS tæki í heimahúsum sem aftur voru einnig mjög sjaldgjæf þó fyrsta tækið hafi ég séð í kringum 6 ára aldurinn þar sem faðir vinkonu minnar var í siglingum – gott ef þetta hét ekki BETA eitthvað. Mér er það einnig í fersku minni þegar fjölskyldan eignaðist sitt fyrsta videotæki í kringum 1985 – þar að auki nýkomin með litasjónvarp. Við vorum svo feimin að flagga munaðinum fyrstu mánuðina að þegar tækið var ekki í notkun var það geymt inni í koddaveri í svefnherbergisskáp foreldra minna. Að velja sér mynd á myndbandaleigu var svo hátíðleg stund og sjaldgæf, að hún gat tekið allt að 1-2 klukkustundir. Síðan eru 30 ár og mikil þróun orðið.

Líkt og fram kemur í lesefninu er myndavélaeign, og þar með talið búnaður til að taka upp hreyfimyndir, orðin mjög útbreidd í dag. Það hefur aftur áhrif á hversu margir hafa nú tök á því að vinna með ljósmyndir og hreyfimyndir í kjölfar æ betri tækni og viðráðanlegra verðs búnaðsins. En almenningseigninni fylgir að erfiðara er að skilgreina þessa miðlun sem list. Almenningseigninni fylgir reyndar líka ákveðið vald svo ekki sé minnst á það þegar samfélagsmiðlar eins og fésbókin, koma einnig við sögu. Að mínu mati er þetta tiltölulega nýfengna „ljósmynda- og kvikmyndafrelsi“ vand með farið og röng notkun, viljandi eða óviljandi, getur haft gífurleg áhrif á líf fólks.

Að þessu sinni er ætlunin að skoða miðla, en hvað eru miðlar? Eða miðlun? Orðið gefur til kynna einhverskonar samskipti sem á stundum ganga út fyrir líf og dauða þar sem miðilsgáfa kemur til sögunnar - en það er ekki áherslan að þessu sinni. Orðið að miðla þýðir þannig að veita, úthluta eða láta eitthvað af hendi. Fjölmiðlar láta upplýsingar af hendi, prentmiðlar vinna fróðleiksverk upp í hendur á lesendum, spámiðlar veita aðgang að duldum heimi og þar fram eftir götunum.  

Dans er ákveðinn miðill eða form til að koma upplýsingum til áhorfenda. Dans getur verið listræn afreying á sama tíma og dansverk gæti talist hápólitísk ádeila,  átt rætur til trúarlegra athafna eða verið einkenni og sameiningartákn þjóðar. Dans er alls staðar, hvort heldur sem er í manna- eða dýraríkinu og er samtvinnuð öðru miðlunarformi eða líkamstjáningunni. Ég hef í sjálfu sér engin sérstök verk í huga í þessum pælingum en þetta var það fyrsta sem kom upp í hugann þegar hann reikaði útfyrir hina hefðbundnu ljósvakamiðla. Dansmiðillinn verður þó ekki umfjöllunarefni mitt að þessu sinni.

Fréttabréf er eitt form miðlunar hvort heldur sem þau eru útprentuð eða rafræn. Þau eru form sem ég hef aðeins fengist við en að mínu mati mætti oft á tíðum gera þessa miðla meira aðlaðandi, meira grípandi. Ég hef í sjálfu sér ekki mikið vit á grafískri uppsetningarhlið formsins en oft á tíðum finnst mér of mikið kaos í gangi – of lítil gleði. Undantekning frá þessu er þó fréttabréf Tiger verslananna en þar eru oft farnar óhefðbundar leiðir í textameðferðinni alla vega. Samanborið við fréttabréf Rúmfatalagersins eða Bauhaus, sem innihalda þurra upptalningu á vöruúrvali í bland við gífurlegt myndaflóð, getur verið virkilega gaman og spennandi að fletta í gegnum Tigerblaðið þó ekki nema til að kíkja á hvað þeim hefur nú dottið í hug að pára. Já, fréttabréf mætti poppa meira upp en mig langar í raun ekkert sérstaklega mikið til að grúska í forsögu þeirra eða félagslegu gildi.

Heimasíður eru tiltölulegt nýtt fyrirbæri en ég kynntist þeim ekkert fyrr en á fyrsta námsári mínu í Kennaraháskólanum 1998. Ég er heilluð af miðlunarforminu og hugsa mér gott til glóðarinnar að ná tökum á því. Mér finnst sem framtíðaratvinnumöguleikar mínir muni liggja samhliða heimasíðugerð og hef mikinn áhuga á að skilja virkni þeirra til hlítar. Hingað til hef ég ekki gefið mér mikinn tíma til að skoða og stúdera heimasíður almennt en hlakka til að tileinka mér miðilsformið meðan á náminu stendur. Ef einhverjar heimasíður eru að heilla mig umfram aðrar þá eru það síður Discovery Channel og minnst var á á lesefninu Color and Graphics (kafli 7) hjá Hafdísi. Þar er samspil lita, mynda og forma áberandi og gegnum gangandi þemu í öllum þeirra undirsíðum, þemu sem tengjast viðfangsefninu hverju sinni. Mér líkar vel svona skipulag þar sem heild og sýnileg tenging ræður ríkjum.

Ljósmyndun er miðlun sem er afar áhugaverð og eftir því sem ég les meira inn í þetta nám, þeim mun meira átta ég mig á því hvað felst í orðinu. Fyrirlestur Péturs Thomsens í fyrstu staðbundnu lotunni var að vissu leyti opinberun en ég verð þó að játa að ég botnaði lítið í mörgum af þeim myndum sem hann sýndi þá. Eftir myndbyggingar- og ljósmyndunarverkefnið með þemaorðinu vaknaði þó eitthvað með mér. Þótti mér einnig nokkuð athyglivert sem fram kom í lesefni vikunnar að frægir listmálarar hafi stuðst við ljósmyndir við verk sín allt aftur á miðja 19. öld. Þannig hafi ljósmyndin sem slík ekki verið talin eiginleg list í upphafi heldur hjálpartæki/upptökutæki listamannsins... ekki nema að hún hafi verið úr fókus og draumkennd, þá hafi hún fyrst öðlast eitthvert listrænt gildi. Það var líka eitthvað við tölvuljósmyndaverkin í fyrirlestri Péturs sem vakti athygli mína, og þá sérstaklega myndin af bóndabýlinu flöskuskeytinu. Ég fattaði um leið og ég sá verkið að þetta langaði mig að kunna. Útkoman snart einhverjar föndurtaugar hjá mér í jákvæðasta skilningi þess orðs, og tölvuljósmyndaföndur væri þá ekki fyrsta sem ég félli fyrir í þeim efnum. En ég ætla að bíða með ljósmyndagrúskið fram á næstu önn.

Því stytti ég mál mitt nú snögglega og vel kvikmyndaformið – nánar tiltekið „þögla formið“. Ég elska Harold Lloyd og Charlie Chaplin, og langar að kynnast þeim betur og þeirri leið sem þeir fóru til að koma boðskap sínum á framfæri á bernskuárum kvikmyndalistarinnar. Árum sem langafi var upp á sitt besta og trúlega að safna fyrir fyrstu kvikmyndavélinni sinni. Allir voru þessir menn fæddir rétt fyrir aldamótin 1900 og allir höfðu þeir mikinn áhuga á kvikmyndagerð. Hver veit nema langafi, farkennari, skáld og eggjabóndi, hefði átt sér aðra framtíð ef fæðst hefði í sömu sveit og fyrrgreindir meistarar í stað Leirulækjarsels, torfbæjar og hjáleigukots á Leirulæk í Borgarnesi. Ég renni nokkuð blint í sjóinn en eftir örlitla skimun á Netinu virðist vera úr nokkru efni að moða svo ég held með valinu og tileinka það langafa að þessu sinni.  Verkefnið mitt á næstu dögum og vikum verður því að skoða fagurfræðilegt, félagslegt og sögulegt gildi þöglu myndanna.