Skriðuklaustur
að setjast niður og skrifa um Skriðuklaustur án þess að kynna sér til hlítar sögu þeirra einstaklinga sem stóðu að byggingu þess, og verður þá helst að nefna þá tvo Gunnar Gunnarsson, upprunalegan eiganda hússins og þýskan arkitekt og vin hans, Fritz Höger.
Eftir heilmikinn lestur um Gunnar, forsögu hans og æviferil, hef ég komist að því að hann er eitt mesta skáld þjóðarinnar fyrr og síðar, og m.a. tilnefndur í fernra Nóbelsverðlauna á ferli sínum enda þótt hann hafi lotið í lægra valdi fyrir Halldóri Laxness í síðasta sinn er hann var tilnefndur.
Æviferill Gunnars er um margt sérstakur, hann varð vinsæll í Þýskalandi í upphafi millistríðsáranna og tenging hans þangað var bæði flókin og margþætt. Ekki einungis giftist hann danskri konu af þýskum aðalsættum heldur flutti einn sona hans þangað að nema læknisfræði og starfaði sem slíkur í seinni heimsstyrjöldinni. Stjórnendur þriðja ríkisins voru einkar hrifnir af bókmenntum Gunnars og hömpuðu honum. Varð Gunnari vel til vina við menn skráða í nasistaflokknum, m.a. fyrrgreindan arkitekt Fritz Höger. Og enda þótt hann sé talinn eini Íslendingurinn sem nokkurn tímann hafi hitt Hitler í eigin persónu er ekkert sem gefur til kynna við lesturinn að hann sjálfur hafi verið í neinum tengslum við nasistaflokkinn sem slíkan eða aðhyllst stefnu hans eins og velt var upp í verkefni 2.
Ef aftur er vikið að Skriðuklaustri þá er nokkuð sérstakt að finna 325 fm2 byggingu í evrópskum herragarðsstíl mitt í íslenskri sveitarómantík á Austurlandi, og fróðlegt að lesa hvernig röð tilviljana urðu til þess að einmitt þarna hafi húsið risið og á þessum tímapunkti. Gunnar hafði fjárfest í nokkrum öðrum jarðeignum á Íslandi árin á undan og m.a. horft hýru auga til Korpúlfsstaða og Viðeyjar rétt áður en Fljótsdalurinn varð fyrir valinu. Það er jafnframt fróðlegt að sjá hvernig ófyrirsjáanlegar og óviðráðanlegar samfélagsbreytur geta kollvarpað áformum og áralöngum draumum einstaklinga, en það varð einmitt raunin með Skriðuklaustur sem upprunalega átti að vera fyrsta húsið af nokkrum byggingum sem samtals áttu að spanna yfir 2800 fm2 að grunnfleti. Eftirstríðsaárin settu öll slík áform í upplausn.
Fyrir mistök las ég rangt efni síðast og lék mér að því að skoða Gunnar Gunnarsson útfrá tískumstraumum og stefnum liðinna áratuga. Ég velti því upp hvort honum hafi gengið eitthvað til með því að fá þýskan arkitekt til að reisa þýskan múrsteinsexpressjónisma innan um vappandi vopnaða breta í íslenskri sveit. Hvort maðurinn hafi verið í uppreisn gegn íslenskum stjórnvöldum og jafnvel hliðhollur nasistum. Eftir nánari lestur verð ég að éta þetta ofan í mig því þar sem að Skriðuklaustur er meira í anda almennra evrópskra herragarða sem fyrr segir og minni þá helst á hefðubundinn suðurþýskan (bæheimskan) sveitastíl – stíl sem gerði það þó að verkum að margir töldu að Arnarhreiður, sumarhús Hitlers væri einnig eftir Fritz Höger. Þegar betur var að gáð kom jafnframt í ljós að Gunnar var sjálfur í allt öðrum pælingum en að ögra samlöndum sínum á einn eða neinn hátt og voru fyrstu skissur hans sjálfs meira í anda bygginga eins og Húsmæðraskólans á Hallormsstað – teikningar húss sem að forminu til minnsti helst á burstabæ:

Hið rétta er að Fritz frétti af vangaveltum vinar síns og svo fór að hann bauðst til að hanna Skriðuklaustur fyrir hann og fékk verkið. Sem arkitekt kom hann aldrei til Íslands meðan á byggingunni stóð og rímar það nokkuð við lesefni viku 2 þar sem greint er frá því að nám í arkitektúr gangi í raun útfrá því að arkitektar séu listamenn sem ekki munu koma mikið nálægt byggingarvinnunni sjálfri. Byggingin samsamar sig þó vel þar sem hún stendur enda fékk hann staðhætti senda frá Gunnari áður en hann hóf hönnun sína.
Varðandi það að skoða þjóðlegan arkitektúr á Norðurlöndunum sem hliðstæðu Skriðuklausturs þá datt ég inn á skemmtilega grein eftir Hjörleifa Stefánsson á Morgunblaðsvefnum, Menning í húsbyggingum, þar sem komið er inn á hið íslenska þjóðlega byggingarform ef svo má að orði komast. Rætt er um burstabæjaáhrifin og hvernig íslensk byggingarlist mótaðist í langan tíma af útiliti og formum torfbæjanna samhliða óblíðu veðurfarinu. Að hluta til má segja að Skriðuklaustur sveigist í átt til torfbæjaútlitsins þar sem þak hússins er úr torfi (og reyndar allra þeirra bygginga sem rísa áttu á jörðinni í kjölfarið). Eins eru veggirnir hlaðnir svo sjá má í ávalar steinvölur sem minnir aftur á grjóthleðslur torfbæjanna í bland við dönsku hleðsluáhrifin sem gætt höfðu reyndar á Íslandi um skeið. Svo þannig séð vísar hönnun Skriðuklausturs til þeirrar efnisöflunar sem í boði var á Ísland í árhundruðir á sama tíma og bogadregnar línur og áður óþekktur íburður í mannabústöðum voru ný element í sveitinni og gerðu bygginguna einstaka meðal eyjaskeggja.
Talandi um tákn bygginga, sem er aðeins komið inn á í lok lesefnisins, þá lá ljóst fyrir frá upphafi að húsið skyldi verða tákrænt fyrir styrk og veldi hins íslenska stórbónda. Þrátt fyrir það endaði húsið sem eign íslenska ríkisins innan við áratug eftir að það var reist. Þá þjónaði eignin um skeið sem tilraunastöð fyrir sauðfjárkynbætur og í dag er húsið nýtt sem menningar og fræðasetur. Þetta eru nokkuð ólík hlutverk á ekki lengri tíma en í kynningu minni hyggst ég gera ofangreindum atriðum betri skil ásamt því að koma inn á þætti eins og byggingarframkvæmdina, kostnað, efnisöflunina, menningarlegt, sögulegt og fagurfræðilegt gildi, og fleira. Ég geri ráð fyrir að grindin mín muni líta nokkurn veginn svona út:
Sem fyrr mun ég setja rökstuðning inn jafnóðum og ég fjalla um ákveðið efni og tel að það sem ég hef þegar lesið af efninu þá muni það helst vera í umræðunni um menningarlegt og sögulegt gildi Skriðuklausturs í dag. Hinir kaflar kynningarinnar eru meira beinar staðreyndir um tilurð byggingarinnar. Og svo er þetta fagurfræðilega gildi svo afstætt og persónubundið...
Með kveðju, Unnur María :-)
Lesefni
Richard Williams, Architecture and Visual Culture.
Heimasíða Skriðuklausturs
Skiðuklaustur á Wikipedia
Hjörleifur Stefánsson, Menning í húsbyggingum.