Skriðuklaustur

Í lesefni liðinnar viku...

er nokkur áhersla á sögu tísku og fatnaðar allt til miðalda og hvernig föt og fylgihlutir hafa orðið hluti af ólíkum menningarsamfélögum, og jafnvel stuðlað að stéttaskiptingu allt frá því að ört stækkandi borgir sköpuðu grundvölld fyrir sérhæfingu og meiri fjölbreytni í iðngreinum.

Ljóst er að að auknar tekjur almennings á 18. öld ýttu undir þróun tískustrauma sem spiluðu aftur stórt hlutverk í lista- menningarþróuninni. Fatnaður varð að hluta status, fólk varð að öðlast félagslegt samþykki í tískuefnum sem öðrum. Í dag notar fólk fatnað og fylgihluti, húðflúr, hárgreiðslur og líkamsmálningu (og jafnvel grímur og ör) til að aðgreina sig frá öðrum hópum – ólíkt því sem áður var. Tíska hefur þannig orðið að persónulegri yfirlýsingu, tjáningarformi eða jafnvel tæki uppreisnar sbr. pönkið sem hafnaði kvenleika og kvenlegri fegurð. Tískubylgjur urðu að ákveðið frelsi fyrir minnihlutahópa svo félagsleg vídd hugtaksins er skemmtilega mikil. Stöðugar breytingar eru í gangi varðandi sambands tísku og félagslegrar stöðu fólks, og föt geta skipt sköpum í ímyndavinnu þeirra sem vilja komast til áhrifa í stjórnmálaheiminum.

Fyrirbærið tíska er bæði sögulegt og tímabundið undur sem tekur stöðugum breytingum. Sem slík er hún sá geiri sjónrænu listamenningarinnar sem er í hvað örustu þróun. Ákveðin tímamót urðu um 1980 þegar tísku sem slíkri er gert hærra undir höfði meðal menntageirans og rannsóknir fara í auknum mæli að beinast að þessum kima menningargeirans. Í dag er tíska skoðuð út frá mörgum ólíkum sjónarhornum s.s. félagsfræðinni, menningunni, sálfræðinni og jafnvel kynjafræðinni. Tísku hefur jafnframt fylgt bæði neikvæð og jákvæð viðhorf og er þetta menningarfyrirbæri gríðarmikill viðskiptagrundvöllur með fjöldann allan af ólíkum starfsstéttum sem eltast við tískuskott líðandi stundar.

Til að skilja tískuna til fulls þarf að átta sig á heildarsamhenginu og samspili tísku, menntunar, fyrirsæta, hönnuða, saumastofa, ljósmyndara, stíllista, seljanda og kaupanda (og jafnvel fleiri aðila). Eftir stendur að tíska hefur gefið orðinu „verslun“ ákveðinn afþreyingarstimpil og þar hafa tískublöð síðustu áratuga haft mikið að segja. Aðrir fjölmiðlar hafa jafnframt mótað þróunina á sinn hátt en ekkert af ofangreindu hefur þó náð minni athygli neitt sérstaklega í gegnum tíðina. Mér finnst tíska og tískuspekúleringar leiðinlegar, en þó gaman að geta eftir lestur þessarar greinar komið með sögulegan vinkil á það sem mér hefur hingað til þótt yfirborðskennt og lýjandi umræða.


Skriðuklaustur

Ekkert af ofangreindu varpar ljósi á viðfangsefni mitt að þessu sinni, Skriðuklaustur, og frekar fáar hugmyndir fékk ég um nálgun mína á því verkefni við lesturinn. Mér dettur þó helst í hug að skoða hvaða „tískubylgjur“ riðu yfir í byggingarlistinni á þeim tíma sem Skriðuklaustur reis, og hvað annað var að gerast í sjónrænni listasögu á byggingarárum þess? Hvað voru listaspírur að dútla sér sem dæmi og hvert var viðhorf almennings til byggingarinnar? Gæti verið að Skriðuklaustur hafi verið Ráðhús eða Harpa síns tíma? Voru þetta umdeildar framkvæmdir? Rímaði verkið við almennt efnahagsástand á stríðsárunum?

Skriðuklaustur stendur í Fljótsdal og það eru nokkuð merkir menn, sinn á hvoru listasviðinu, sem komu að gerð þess. Gunnar Gunnarsson skáld lét reisa húsið sem hannað er af hinum þýska Fritz Höger, þjóðþekktum arkitekt í byggingarlistarsögu 20. aldarinnar. Verkefnið gæti ég nálgast út frá heimi þessara mektarmanna og skoðað menningarlega og samtímalega áhrifavalda í lífi þeirra sem svo aftur gæti varpað ljósi á tilurð byggingarinnar – en kannski yrði það bæði þurr og leiðinleg nálgun?

Ætti ég að setja meiri hasar í þetta?! Var byggingin mögulega bruðl eða félagslegur montstatus/yfirlýsing bóndasonar frá Valþjólfsdal í Fljótsdal? Var einhver tilgangur með íburðunum? Átti kannski að koma heimastöðvunum á menningarkortið með stæl? Eða var Gunnar Gunnarsson kannski að gefa einhverjum fingurinn með því að reisa þýskan múrsteinsexpressjónisma á sama tíma og breskt og bandarískt herlið vappaði víghreift um sveitir landsins? Var Gunnar eftir allt uppreisnaseggur, fyrsti íslenski pönkarinn eða skápanasisti vinveittur óvininum? Hver er forsaga Gunnars og Fritz(s)? Hvaðan kom efniviðurinn? Fátt veit ég um þetta allt saman en forvitin er ég orðin...

Skáldinu Gunnari Gunnarssyni hef ég lítið kynnst fyrir utan lestur Svartfugls og legg í þetta ferðalag með óskrifað blað og opnum huga. Líklegast reyni ég að leita svara við einhverjum af ofangreindum pælingum mínum samhliða því að skoða fagurfræðilegt, félagslegt og sögulegt gildi hússins þá og nú. Mér þykir duluð og leynd hvíla yfir þessari byggingu sem klárt er að á sér ekki hliðstæðu á Íslandi.

Skriðuklaustur hef ég margoft sótt á ferðum mínum um Austurland og það er alltaf jafn gaman að koma við í þessu fallega menningarsetri. Hingað til hef ég ekki lagt á mig að kynna mér sögu staðarins neitt sérstaklega en eftir skimunina í verkefni 1, og vangavelturnar nú, er ég sannfærð um að það verði bæði skemmtilegt og fróðlegt.

 

Hvað heimildaöflun...

varðar þá hefur Skriðuklaustur sína eigin heimasíðu sem er stútfull af fróðleik en einnig er að finna gríðarmikið magn um sögu þess á Wikipedia. Þá eru einnig til ýmsar aðrar greinar um bygginguna á Netinu, ásamt skýrslum um fornleifauppgröft á svæðinu. Enn hef ég ekki fundið neina útgefna bók um viðfangsefnið mitt en viðurkenni að hafa ekki gefið þeim þætti mikinn tíma – þigg þó allar ábendingar um slíkt!

Með kveðju, Unnur María :-)

 

Lesefni

Fiona Anderson. Fashion: Style, Identity and Meaning.

Heimasíða Skriðuklausturs

Skiðuklaustur á Wikipedia

Grein um Skriðuklaustur á Morgunblaðsvefnum

Skriðuklaustur á Facebook

Um Gunnar Gunnarsson

Um Fritz Höger

Hvaða klaustur voru á Íslandi á miðöldum?