Vatnsdælasaga á refli
"Skoðið lesefnið og punktið hjá ykkur hugmyndir sem ykkur finnst að gætu nýst við að skoða listaverkið sem þið eruð búin að velja."
Ég hef verið að punkta hjá mér jafnóðum og ég les yfir þessa kafla en satt best að segja var síðasti lestur nokkuð tormeltur. Ég gat nánast ekkert tengt hann við refilinn minn enda efni þessa kafla straumar og stefnur sem komu til sögunnar löngu eftir að reflar duttu úr tísku. Ég þarf að renna betur yfir kaflann til að átta mig á einhverjum tengingum - og þigg auðvitað allar ábendingar samnemenda minna :-)
"Hvernig ætlið þið að ræða verkið og túlka á menningarlegan hátt?"
Ég ætla að segja almennt frá refli og refilsaumi, auk þess að skoða hvernig refillinn hefur annars vegar tengst menningu okkar frá því á miðöldum, og jafnvel fyrr, auk þess að skoða hvaða menningarlegu tengingu hann hefur í dag á því formi sem hann er settur fram á Blönduósi þ.e. sem liður í menningartengdri ferðamennsku.
"Skipuleggið hvernig hægt er að kaflaskipta umfjöllun um það verk sem þið hafið valið."
Sem stendur líta drögin að grindinni mín nokkurn veginn svona út. Ég er byrjuð að vinna við flest þessara atriða, langt komin með sum en skemur á veg með önnur. Röðunin á kannski eftir að breytast lítillega eftir því sem kjötið kemur á...
Heimildir mínar hafa lítið breyst...
- Hvað er listaverk?
- Handverk vs. listaverk
- Vangaveltur útfrá lesefni og samræðutímum
- Refill í smíðum, Vatnsdælasaga.
- Er þetta listaverk eða handverk, tenging við listasöguna.
- Saga þessa tiltekna verks - hvað er menningartengd ferðamennska
- Upphafshugmyndin, vs. franska fyrirmyndin...
- Aðstandendur, samstarfsverkefni, listamenn, ...
- Myndbygging og litaval Vatnsdælarefils, hefur þetta tvennt einhverja þýðingu?
- Sýningarstaður
- Framtíðarhlutverk/staðsetning
- Staðan í dag
- Tenging við Brennu-Njálsrefil
- Hverjir saumuðu refla, hvernig vara var þetta - tenging við lesefnið
- Efnistök og útsaumsgerðir (litun garns, refilsaumurinn, efnið og litavalið)
- Þjóðminjar?
- Hvert var samfélagslegt gildi þeirra áður fyrr
- Hvert er samfélagslegt gildi Vatnsdælarefils í dag
Að mínu mati er eðlilegast að rökstuðningur komi fram um leið og fjallað er um ákveðið viðfangsefni og heimilda þá jafnframt getið um leið. Eðlilegt er að kynna andstæðar hugmyndir, stefnur og strauma sé slíkt fyrir hendi, og fjalla um þær á hlutlausan hátt enda þótt rannsakandi geti greint frá því hvaða hugmyndir hann aðhyllist öðrum fremur. Þannig mun ég vinna að kynningu minni og leggja hana fram á glæruformi þegar þar að kemur.